Ísak Steinsson, markvörður norska úrvalsdeildarliðsins Drammen, er orðaður við portúgalska stórliðið Sporting Lissabon. Þetta kemur fram í færslu Norðmannsins Magnus Tveitdal Olsen á samfélagsmiðlinum X en hann segist hafa heimildir fyrir því að Sporting hafi áhuga á að fá íslenska markvörðinn til liðs við sig. Ísak hefur undanfarin ár leikið með Drammen í norsku úrvalsdeildinni en gæti nú verið á leið til eins sterkasta félagsliðs Portúgals. Sporting hefur verið í fremstu röð portúgalsks handbolta undanfarin ár og leikur jafnframt í Meistaradeild Evrópu. Þar leikur fyrir íslenski landsliðsmaðurinn Orri Freyr Þorkelsson en Orri Freyr gengur í raðir Gummersbach næsta sumar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.