Jonathan Carlsbogård, leikmaður Barcelona, hefur verið kallaður inn í sænska landsliðshópinn fyrir komandi leiki í undankeppni EM, þrátt fyrir að hafa hafnað landsliðssæti fyrir aðeins nokkrum vikum. Sænski miðillinn Sportbladet greinir frá þessu en ástæðan eru meiðsli Nikola Roganovic, leikmanns Gummersbach, sem verður frá keppni næstu fimm til sex vikurnar vegna álagsbrots í fæti. Roganovic skoraði tólf mörk í óvæntum sigri Gummersbach á Flensburg um síðustu helgi en missir nú af komandi landsleikjum Svía. Carlsbogård vakti mikla athygli þegar hann hafnaði landsliðssæti fyrir nokkrum vikum. Ástæðan var sú að Michael Apelgren landsliðsþjálfari gat ekki lofað honum nægum spiltíma í sóknarleiknum. Carlsbogård hefur undanfarin ár verið einn af lykilmönnum Svía í varnarleiknum. Nú hefur staðan breyst og staðfestir Apelgren að Carlsbogård taki við hlutverki Roganovic. „Hann kemur beint inn í stað Roganovic og tekur við hans hlutverki. Carlsbogård mun nú keppa um sæti í liðinu á þeim forsendum sem hann hefur sjálfur óskað eftir. Við teljum hann einn af fjórum bestu rétthentu skyttunum okkar þegar Roganovic er ekki til staðar,“ sagði Apelgren við Sportbladet. Apelgren segir að Carlsbogård hafi vitað að hann yrði fyrstur inn í hópinn ef einhver af skyttum liðsins myndi meiðast. Hann ítrekar jafnframt að engin óvild sé á milli þeirra. Svíar mæta Grikkjum á heimavelli og Lúxemborg á útivelli í undankeppni EM í næstu viku. Þrátt fyrir meiðsli Roganovic hefur Apelgren ekki miklar áhyggjur af þátttöku hans á heimsmeistaramótinu í janúar. „Ég held að það ætti ekki að vera nein hætta á því. Það er hins vegar aldrei gott þegar leikmenn meiðast og Nikola er leikmaður sem við höfum mikla trú á. Það er leiðinlegt, bæði fyrir okkur og hann, að fá svona bakslag í þróun hans,“ sagði Apelgren.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.