KA/Þór heimsækir HK í Kórinn í kvöld í 7. umferð Olís-deildar kvenna. Jónatan Magnússon, þjálfari KA/Þórs, segir byrjun tímabilsins hafa verið erfiða en leggur áherslu á að liðið sé í langtímaverkefni og að þolinmæði sé mikilvæg. Leikur HK og KA/Þórs hefst klukkan 19:00 en klukkan 18:30 mætast Stjarnan og Valur. Norðankonur hafa þurft að glíma við nokkur skakkaföll í leikmannahópnum en Jónatan segir liðið engu að síður tilbúið í verkefni kvöldsins. „Staðan er ágæt, einhver skakkaföll en mætum samt klárar í kvöld,“ sagði Jónatan í samtali við Handkastið. Innkoma Aldísar Ástu Heimisdóttur í lið KA/Þórs er kærkomin styrking fyrir Norðankonur. Hún lék sinn fyrsta leik í síðustu umferð en þá kom einmitt fyrsti sigur KA/Þórs á tímabilinu þegar liðið vann Stjörnuna á heimavelli. Jónatan segir hana þegar hafa haft jákvæð áhrif á sóknarleik liðsins en að hún þurfi tíma til að komast að fullu inn í leik liðsins. „Gríðarlega gott að fá hana inn, gefur okkur gríðarlega mikið og hjálpar okkur mikið í sóknarleiknum. Hún mun svo hægt og rólega komast meira inn í hlutina og spilmínúturnar aukast.“ Byrjun KA/Þórs á tímabilinu hefur ekki verið eins og vonir stóðu til en Jónatan horfir til lengri tíma og ætlar sér að byggja liðið upp jafnt og þétt. KA/Þór er með tvö stig, jafn mörg stig og Stjarnan og HK. „Byrjunin á tímabilinu hefur verið erfið, en við erum að vinna með langhlaup í stað spretthlaups,“ sagði Jónatan þegar hann var spurður út í byrjun tímabilsins. Fram undan er krefjandi verkefni gegn HK í Kórnum. Jónatan ber virðingu fyrir liði HK og telur ljóst að hans leikmenn þurfi að sýna sínar bestu hliðar ætli þær sér að ná í stig. „Hörkuleikur og mikilvægur eins og þeir eru flestir. HK með flott lið og við þurfum að eiga toppleik til að ná einhverju úr Kórnum,“ sagði Jónatan Magnússon, þjálfari KA/Þórs, að lokum í samtali við Handkastið. Viðureign HK og KA/Þórs fer fram í Kórnum í kvöld og er liður í 7. umferð Olís-deildar kvenna.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.