Stjarnan tekur á móti Íslands-, bikar- og deildarmeisturum Vals í 7. umferð Olís-deildarinnar kvenna í kvöld klukkan 18:30. Stjarnan hefur átt misjöfnu gengi að fagna í upphafi tímabilsins en liðið er í mikilli uppbyggingu eftir töluverðar breytingar á leikmannahópnum í sumar. Stjarnan er á botni deildarinnar með tvö stig, jafn mörg stig og HK og KA/Þór sem mætast í Kórnum í kvöld klukkan 19:00. „Byrjunin á tímabilinu hefur ekkert verið ósvipuð því sem maður bjóst við fyrir tímabilið. Deildin virðist vera tvískipt og gríðarlega jöfn bæði í efri og neðri helmingnum,“ sagði Arnar Daði í samtali við Handkastið. „Eftir góðan sigur á Gróttu í 3. umferðinni er auðvitað fúlt að hafa ekki náð að fylgja því eftir með fleiri sigrum en það er ekkert við því að gera. Tímabilið er langt og við erum að móta algjörlega nýtt lið.“ Stjarnan tapaði gegn KA/Þór í síðustu umferð en Akureyrarliðið hafði ekki náð að vinna leik í deildinni fram að því. Arnar Daði var ekki sáttur við frammistöðu sinna leikmanna í leiknum. „Frammistaðan gegn KA/Þór var heilt yfir ekki nægilega góð. Við náðum engum takti varnarlega og þá eru hver mistök sóknarlega dýr. Við náðum hins vegar að klóra okkur aftur inn í leikinn og minnka muninn í eitt mark en þá skoruðu KA/Þór tvö mörk í röð þegar höndin var komin upp hjá dómurunum og kláruðu þar með leikinn. Ég viðurkenni að þetta var farið að líta ágætlega út en holan sem við höfðum komið okkur í, var aðeins of djúp.“ Það sem hefur þó sett hvað mest strik í reikninginn hjá Stjörnunni í upphafi tímabilsins eru mikil meiðslavandræði. Arnar Daði segir að liðið hafi þurft að glíma við meiðsli í aðdraganda allra leikja tímabilsins og nefnir meðal annars fingurbrot, slitið krossband, höfuðhögg, bakmeiðsli, tognun aftan í læri og jafnvel nýrnasteina. „Við höfum verið ótrúlega óheppnar með meiðsli í upphafi tímabils. Við höfum ekki látið það hafa áhrif á okkur í undirbúningi okkar fyrir hvern leik en auðvitað hefur það áhrif á framþróun liðsins þegar við erum að byggja upp nýtt lið að það koma alltaf inn óvæntar aðstæður í hverri viku.“ Þrátt fyrir mótlætið segir Arnar Daði að leikmenn liðsins hafi brugðist vel við og að aðrir leikmenn hafi fengið tækifæri til að stíga upp. „Við höfum lent í einhvers konar meiðslum í aðdraganda allra leikja tímabilsins og það er engin breyting þar á fyrir leikinn í kvöld. En eins og ég segi, stelpurnar hafa ekki látið það hafa áhrif á sig og aðrir leikmenn hafa stigið inn og fengið aukið hlutverk.“ „Við höfum í raun átt góða en mislanga kafla í öllum okkar leikjum fyrir utan leikinn gegn Fram. Það er okkar vinna núna að lengja þessa góðu kafla og stytta svokallaða slæma kafla sem var viðbúið að kæmu í upphafi tímabils.“ Það verður ærið verkefni fyrir Stjörnuna í kvöld þegar þrefaldir meistarar Vals mæta í heimsókn. Arnar Daði segir Valsliðið hafa verið að styrkjast jafnt og þétt eftir því sem liðið hefur fengið leikmenn til baka úr meiðslum en Stjarnan ætli sér að láta meistarana hafa fyrir hlutunum. „Við erum spenntar fyrir leiknum í kvöld, gegn þreföldum meisturum Vals. Þær hafa hægt og bítandi verið að styrkja sínar raðir og leikmenn að koma til baka eftir meiðsli. Valur hefur á að skipa reynslumiklum leikmönnum blandað við unga og bráðefnilega leikmenn.“ „Þær koma inn í þennan leik með mikið sjálfstraust en við ætlum að gera allt sem í okkar valdi er að velgja þeim undir uggum og síðan gerum við upp leikinn að honum loknum.“ Leikur Stjörnunnar og Vals hefst klukkan 18:30 í kvöld.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.