Fimm Íslendingalið í hópi tólf bestu liða Evrópu
Julien Kammerer / DPPI via AFP

Nú liggur fyrir hvaða tólf lið eru komin áfram í milliriðla Meistaradeildar Evrópu í handbolta eftir að riðlakeppninni lauk í vikunni. Fimm lið með íslenska leikmenn innanborðs eru á meðal þeirra sem tryggðu sér sæti í næstu umferð keppninnar.

Keppnisfyrirkomulag Meistaradeildarinnar tók breytingum fyrir þetta tímabil en alls hófu 24 lið keppni, skipt í sex fjögurra liða riðla. Tvö efstu lið hvers riðils tryggðu sér sæti í milliriðlum en liðin í þriðja og fjórða sæti halda áfram keppni í Evrópudeildinni.

Í milliriðlunum tólf verður liðunum skipt í tvo sex liða riðla þar sem þau taka með sér stigin sem þau unnu gegn þeim liðum sem komust áfram úr sama riðli. Leikin verður tvöföld umferð og fjögur efstu liðin komast síðan í 8-liða úrslit keppninnar.

Svona skiptast milliriðlarnir:

Milliriðill 1

Veszprém – 4 stig
PSG – 3 stig
MT Melsungen – 2 stig
Wisla Plock – 2 stig
Álaborg – 1 stig
Füchse Berlin – 0 stig

Milliriðill 2

Sporting – 4 stig
Barcelona – 4 stig
Magdeburg – 4 stig
GOG – 0 stig
Kielce – 0 stig
Dinamo Búkarest – 0 stig

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top