Monsi fagnaði sigri – Sveinn tapaði á síðustu sekúndunum
Egill Bjarni Friðjónsson

Fjórir íslenskir handboltamenn voru í eldlínunni með félagsliðum sínum í Evrópu í gærkvöldi.

Úlfar Páll Monsi Þórðarson og félagar í Alkaloid unnu öruggan tíu marka sigur í Norður-Makedóníu, Birgir Már Birgisson komst áfram í svissnesku bikarkeppninni en Sveinn Jóhannsson mátti sætta sig við afar svekkjandi eins marks tap í Frakklandi. Þá náði Þorgils Jón Svölu Baldursson og félagar hans á Spáni stigi á lokasekúndunum.

Þorgils Jón Svölu Baldursson og félagar í Caserío Ciudad Real gerðu 29-29 jafntefli gegn Logroño La Rioja í spænsku úrvalsdeildinni.

Gestirnir frá Logroño byrjuðu mun betur og komust í 4-0 áður en heimamenn náðu að svara fyrir sig. Logroño leiddi með þremur mörkum í hálfleik, 14-11, en Caserío náði að vinna sig aftur inn í leikinn í síðari hálfleik.

Mikil dramatík var á lokamínútunum. Logroño komst yfir, 29-28, þegar skammt var til leiksloka en Nacho Plaza jafnaði metin fyrir Caserío. Markvörðurinn Juan Bar varði síðan síðasta skot gestanna og tryggði heimamönnum annað stigið.

Þorgils Jón komst ekki á blað í leiknum en fékk tveggja mínútna brottvísun. Caserío er með átta stig eftir sjö leiki og var í sjöunda sæti spænsku úrvalsdeildarinnar fyrir helgina.

Monsi og félagar unnu með tíu mörkum

Úlfar Páll Monsi Þórðarson og félagar í Alkaloid unnu öruggan sigur á Prilep, 37-27, í níundu umferð norðurmakedónsku úrvalsdeildarinnar.

Alkaloid var fjórum mörkum yfir í hálfleik, 18-14, en gerði út um leikinn í síðari hálfleik. Heimamenn voru komnir sjö mörkum yfir eftir aðeins sjö mínútna leik í síðari hálfleik og náðu tíu marka forskoti þegar tíu mínútur voru eftir. Monsi var ekki meðal markaskorara í leiknum.

Alkaloid er í öðru sæti norðurmakedónsku úrvalsdeildarinnar og hefur verið á góðu skriði að undanförnu. Fram undan eru stórleikir gegn Vardar og Eurofarm Pelister í deildinni auk viðureigna gegn Gorenje Velenje í Evrópubikarnum.

Sveinn skoraði eitt í dramatísku tapi

Sveinn Jóhannsson skoraði eitt mark þegar Chambéry tapaði fyrir Saint-Raphaël, 33-34, á heimavelli í frönsku úrvalsdeildinni.

Chambéry byrjaði betur og komst meðal annars í 7-5 en gestirnir náðu að snúa leiknum sér í hag og leiddu í hálfleik, 18-17. Saint-Raphaël náði þriggja marka forskoti undir lok leiksins og virtist vera með sigurinn í höndunum. Heimamenn neituðu hins vegar að gefast upp og jöfnuðu metin í 33-33 þegar um mínúta var eftir.

Það dugði þó ekki til því Benjamin Bataille skoraði sigurmark Saint-Raphaël þegar aðeins þrjár sekúndur voru eftir.

Lucas Vanègue var langmarkahæstur hjá Chambéry með 13 mörk og gaf auk þess níu stoðsendingar.

Chambéry er í neðri hluta frönsku úrvalsdeildarinnar og Saint-Raphaël jafnaði liðið að stigum með sigrinum.

Birgir Már skoraði eitt í bikarsigri

Birgir Már Birgisson og félagar í GC Amicitia Zürich tryggðu sér sæti í átta liða úrslitum svissnesku bikarkeppninnar með útisigri á TV Möhlin.

Birgir Már skoraði eitt mark úr þremur skotum í leiknum. Markvörðurinn Tim Müller var maður leiksins hjá Zürich og varði 41% skotanna sem hann fékk á sig. Þá átti Sven Ehrig góðan leik og skoraði sjö mörk úr átta skotum.

Zürich var í áttunda sæti svissnesku úrvalsdeildarinnar fyrir síðustu umferð en bikarsigurinn tryggir liðinu sæti meðal átta bestu liða bikarkeppninnar. Dregið verður í átta liða úrslitin á sunnudaginn.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top