Víkingur hafði betur í markaleik gegn Fjölni
Toggi Pop

Víkingur vann tveggja marka sigur á Fjölni, 34-32, í Grill 66 deild kvenna í kvöld. Fjölniskonur leiddu með einu marki í hálfleik, 17-16, en Víkingur sneri leiknum sér í hag í síðari hálfleik og tryggði sér sigurinn í spennandi lokakafla.

Leikurinn fór rólega af stað hvað markaskorun varðaði og eftir rúmlega níu mínútur var staðan jöfn, 3-3. Fjölniskonur náðu síðan frumkvæðinu og komust í 7-3 áður en Víkingur minnkaði muninn.

Heimakonur héldu forskotinu lengst af fyrri hálfleik og komust meðal annars í 10-4. Víkingur svaraði hins vegar með góðum kafla og minnkaði muninn í 11-10. Fjölnir náði aftur þriggja marka forskoti, 15-12, en gestirnir jöfnuðu í 15-15.

Fjölnir átti síðasta orðið í fyrri hálfleik og leiddi 17-16 þegar liðin gengu til búningsherbergja.

Í síðari hálfleik náði Fjölnir þriggja marka forskoti, 20-17, en Víkingur jafnaði í 20-20 og komst síðan yfir í 22-21.

Gestirnir fylgdu því eftir og náðu þriggja marka forskoti í 25-22. Fjölniskonur gáfust þó ekki upp og jöfnuðu metin í 26-26 þegar rúmar tíu mínútur voru eftir.

Mikil spenna var á lokakaflanum. Fjölnir komst í 30-29 þegar tæpar sex mínútur voru eftir en Víkingur svaraði og jafnaði í 30-30.

Liðin skiptust síðan á mörkum og staðan var 31-31 þegar rúmar þrjár mínútur voru eftir. Ivana Jorna Dina Meincke kom Víkingi yfir í 32-31 og Ólöf Ásta Arnþórsdóttir jók forskotið í 33-31.

Sólveig Ása Brynjarsdóttir minnkaði muninn í 33-32 þegar mínúta var eftir en Elín Ása Einarsdóttir skoraði síðasta mark leiksins og tryggði Víkingi 34-32 sigur.

Hildur Sóley Káradóttir var markahæst hjá Fjölni með tíu mörk. Berglind Benediktsdóttir og Sara Kristín Pedersen skoruðu sex mörk hvor. Sara Xiao Reykdal varði tíu skot í marki Fjölnis.

Hjá Víkingi var Ólöf Ásta Arnþórsdóttir markahæst með tíu mörk. Sara Björg Davíðsdóttir skoraði sjö mörk og þær Guðrún Maryam Rayadh og Ivana Jorna Dina Meincke sex mörk hvor. Þórdís Idda Ólafsdóttir varði sjö skot og Bernódía Sif Sigurðardóttir sex.

Sage By Saga Sif styður kvennaumfjöllun Handkastsins - Kóðinn: handkastid veitir 15% afslátt í vefverslun Sage By Saga Sif.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top