Spænski handknattleiksþjálfarinn Carlos Martin Santos hefur verið ráðinn þjálfari karlalandsliðs Litháens. Santos er íslenskum handboltaáhugamönnum vel kunnugur eftir að hafa þjálfað bæði Hörð frá Ísafirði og Selfoss hér á landi en hann hætti óvænt sem þjálfari Selfoss eftir síðustu leiktíð og tók við sænska félaginu Aranas í sænsku 1.deildinni. Litháenska handknattleikssambandið greindi frá ráðningunni í dag en Santos tekur við landsliðinu samhliða störfum sínum hjá sænska félaginu HK Aranäs. Santos hefur yfir 15 ára reynslu af þjálfun á Spáni, Íslandi og í Svíþjóð en hann kom til Íslands árið 2019. Vilius Rasimas fyrrum markvörður Selfoss og Hauka er formaður litháíska handknattleikssambandsins. Fyrsta verkefni Santos verður í undankeppni EM 2028 en Litháen mætir Króatíu á útivelli 4. nóvember áður en liðið tekur á móti Hollandi fjórum dögum síðar. Það er því ekki nema fimm dagar í fyrsta leik. Carlos Martin Santos náði eftirtektarverðum árangri með Hörð frá Ísafirði og kom liðinu upp úr 2. deild og alla leið í Olís-deildina. Árið 2024 tók hann síðan við þjálfun Selfoss og stýrði liðinu upp í Olís-deildina á sínu fyrsta tímabili við stjórnvölinn. Á sínu öðru ári með liðið hélt hann liðinu í Olís-deildinni. Carlos samdi við HK Aranäs til þriggja ára síðastliðið sumar og starfar jafnframt við þjálfun ungra handknattleiksmanna hjá Kungsbacka Elitidrottsgymnasium í Svíþjóð. Með Santos í þjálfarateymi Litháens verður Aidenas Malašinskas, einn besti handknattleiksmaður í sögu Litháens, sem lagði skóna á hilluna fyrr á þessu ári. Malašinskas var sex sinnum valinn besti handknattleiksmaður Litháens á ferlinum og lék 116 landsleiki þar sem hann skoraði 537 mörk. „Það er mér mikill heiður að fá að stýra litháenska landsliðinu. Ég hlakka mikið til þessarar áskorunar og er þakklátur fyrir það traust sem mér hefur verið sýnt. Ég get ekki beðið eftir að hefja störf og vinna að árangri sem öll Litháen getur verið stolt af,“ sagði Santos við heimasíðu litháenska handknattleikssambandsins.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.