Markahæstu leikmenn Grill 66 deildar kvenna
Eyjólfur Garðarsson

Sex umferðir hafa verið leiknar í Grill 66 deild kvenna það sem af er tímabilinu. Afturelding trónir á toppnum taplausar með 12 stig. Grótta 2 reka lestina á botninum með 2 stig.

Sjöunda umferðin verður leikin um helgina en umferðin hefst í kvöld með leik Fjölnis og Víkings sem hefst klukkan 18:00. Einn leikur fer fram á morgun og umferðin lýkur síðan á sunnudag með tveimur leikjum.

Þá er ekki úr vegi að kíkja á 10 markahæstu leikmenn deildarinnar.

  1. Edda Sigurðardóttir - Grótta 2 - 59 mörk
  2. Katrín Helga Davíðsdóttir - Afturelding - 58 mörk
  3. Sylvía Björt Blöndal - FH - 56 mörk
  4. Ólöf Ásta Arnþórsdóttir - Víkingur - 46 mörk
  5. Sara Kristín Pedersen - Fjölnir - 41 mörk
  6. Rakel Dórothea Ágústsdóttir - Afturelding - 35 mörk
  7. Ebba Gurrý Ægisdóttir - Fram 2 - 31 mörk
  8. Ivana Meincke - Víkingur - 30 mörk
  9. Berglind Benediktsdóttir - Fjölnir - 28 mörk
  10. Sara Björg Davíðsdóttir - Víkingur - 27 mörk

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top