EM-hópur A-landsliðs kvenna verður í dag kynntur á blaðamannafundi sem HSÍ hefur boðað til í höfuðstöðvum Arion Banka. Hefst blaðamannafundurinn klukkan 12:15. Arnar Pétursson tilkynnir þá lokahóp sinn sem leikur fyrir hönd Íslands á Evrópumótinu sem framundan er en Ísland leikur riðill sinn í Rúmeníu. Arnar er á leið á sitt fjórða stórmót sem þjálfari kvennalandsliðsins. ,,Á fundinum verður farið yfir hópinn sem fer til Rúmeníu, undirbúninginn í Svíþjóð þar sem liðið leikur tvo vináttulandsleiki gegn heimakonum 26. og 28. nóvember, og riðilinn á EM," segir í tilkynningunni frá HSÍ. Ísland leikur í A-riðli í Oradea gegn Slóveníu 3. desember, Svartfjallalandi 5. desember og Ungverjalandi 7. desember. Allir leikirnir hefjast klukkan 15:30 að íslenskum tíma og eru í beinni á RÚV. Horfðu á blaðamannafundinn í beinni:

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.