Miðasala gengur vel á fyrsta leik íslenska karlalandsliðsins í undankeppni EM 2028. Ísland tekur á móti Úkraínu í Laugardalshöll miðvikudaginn 4. nóvember klukkan 19:30. Samkvæmt Jóni Gunnlaugi Viggóssyni, starfsmanni HSÍ, eru innan við 300 miðar eftir á leikinn þegar fjórir dagar eru til stefnu. Þá eru aðeins átta miðar eftir í VIP. Ísland er í riðli með Serbíu, Úkraínu og Eistlandi. Að loknum leiknum í Höllinni heldur íslenska liðið til Eistlands þar sem liðin mætast sunnudaginn 8. nóvember. Um er að ræða fyrstu tvo leiki Íslands í undankeppninni. Miðasala á leikinn gegn Úkraínu fer fram á Stubb. Það fer hver að verða síðastur að kaupa sér miða.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.