Gunnar var ósáttur við lykilmenn sína í fyrra
Egill Bjarni Friðjónsson

Haukar hafa byrjað tímabilið í Olís-deild karla af miklum krafti og unnið alla átta leiki sína til þessa auk þess sem liðið sló út Stjörnuna í 16-liða úrslitum Powerade-bikarsins og vann báða leiki sína í 1.umferð Evrópubikarsins.

Gunnar Magnússon, þjálfari Hauka, segir aukinn stöðugleika í frammistöðu liðsins vera lykilinn að velgengninni en hann viðurkennir að hafa verið verulega ósáttur við frammistöðu nokkurra lykilmanna sinna á síðustu leiktíð.

Haukar heimsækja KA í KA-heimilið á morgun klukkan 18:30 í stórleik 9. umferðar Olís-deildarinnar. Með sigri geta Haukar jafnað árangur sinn frá tímabilinu 2000–2001 þegar liðið vann fyrstu níu leiki sína í efstu deild.

Gunnar segir að þrátt fyrir marga frábæra leiki á síðasta tímabili hafi skort verulega upp á stöðugleika í frammistöðu liðsins.

„Í fyrra áttum við marga frábæra leiki en duttum svakalega niður þess á milli og mér fannst við sjálfum okkur verstir, hversu óstöðugir við vorum. Við náðum sömu hæðum og við höfum verið að ná á þessu tímabili en núna erum við orðnir stöðugri og ég sagði það í viðtali fyrir mót að það væri eitthvað sem við vildum laga og við vorum meðvitaðir um þetta vandamál.“

Gunnar segir að mikil vinna hafi farið í að bæta þennan þátt og að aukin reynsla leikmanna hafi einnig skipt miklu máli.

„Við höfum unnið mikið í því að verða stöðugri og leikmenn á sama skapi komnir með meiri reynslu og bera meiri virðingu fyrir deildinni. Hingað til höfum við verið miklu stöðugri í okkar frammistöðu og það hefur skilað okkur þessum sigrum.“

Haukar styrktu leikmannahóp sinn fyrir tímabilið en Gunnar segir að það sé ekki eina ástæðan fyrir bættu gengi liðsins.

„Auðvitað hefur það áhrif að við höfum styrkt okkur og það hefur klárlega áhrif. En á sama tíma voru leikmenn hjá Haukum í fyrra sem voru stundum óþekkjanlegir inni á vellinum sem maður þekkti ekki stundum í sumum leikjum og mættu ekki til leiks.“

„En við erum auðvitað með sterkara lið núna og erum komnir lengra í okkar þróun. Ég er auðvitað á öðru ári með liðið núna og það allt saman hjálpar til.“

Gunnar segir að hann hafi verið sérstaklega ósáttur við frammistöðu nokkurra lykilmanna sinna á síðustu leiktíð en þeir hafi tekið stór skref í rétta átt.

„En ég var óánægður með marga lykilmenn hjá mér í fyrra, hversu óstöðugir þeir voru en þeir leikmenn eru stöðugri í ár en í fyrra en þetta er ekkert hókus pókus hvernig þú gerir liðið stöðugra en fyrsta skrefið er að viðurkenna vandamálið og þá er strax hægt að vinna í því.“

Samkeppnin heldur mönnum á tánum

Gunnar segir einnig að Haukar hafi verið heppnir með meiðsli það sem af er tímabili og að breiddin í leikmannahópnum hafi reynst afar mikilvæg.

„Það hjálpar gríðarlega að við höfum verið heppnir með meiðsli og breiddin er góð. Þeir vita það sem hafa komið inn á að ef þeir standa sig ekki þá fá þeir ekki mínútur. Það er bæði breidd og samkeppni milli leikmanna sem gerir það að verkum að frammistaðan verður betri.“

Einn skemmtilegasti útileikurinn sem þú ferð í

Fram undan er sannkallaður toppslagur gegn KA á Akureyri en Gunnar á von á frábærri stemningu í KA-heimilinu í kvöld.

„Þegar maður horfir á deildina og tekur Haukar–FH úr sviga þá er þetta einn skemmtilegasti útileikurinn sem þú ferð í, að fara í KA-heimilið. Það verður troðfullt á leiknum, það er yngri flokka mót um helgina og það verður fullt af fólki og þetta verður einn skemmtilegasti leikur tímabilsins og okkur hlakkar ótrúlega mikið til.“

Leikurinn verður sá fjórði hjá Haukum á aðeins sjö dögum en Gunnar hefur engar áhyggjur af álaginu og staðfestir að allir leikmenn liðsins séu leikfærir.

„Þetta verður fjórði leikurinn okkar á sjö dögum, það er mikið álag en við höfum dreift álaginu vel og mætum ferskir og tilbúnir til leiks. Það eru allir klárir fyrir leikinn,“ sagði Gunnar Magnússon, þjálfari Hauka, að lokum í samtali við Handkastið.

Leikur KA og Hauka hefst klukkan 18:30 í KA-heimilinu í kvöld.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top