Grótta tekur á móti ÍBV í lokaleik 7. umferðar Olís-deildar kvenna í dag klukkan 14:00. Júlíus Þórir Stefánsson þjálfari Gróttu segir sitt lið vera á réttri leið þrátt fyrir að stöðugleika hafi vantað í frammistöðuna í upphafi tímabilsins. Gróttukonur hafa þurft að glíma við meiðsli lykilleikmanna í upphafi móts en Júlíus Þór segir hópinn engu að síður vera í góðum málum. „Staðan á hópnum er bara góð þó svo að við höfum verið að díla við meiðsli lykilleikmanna í byrjun móts. En hópurinn er sterkur og því kemur bara maður í manns stað,“ sagði Júlíus Þór í samtali við Handkastið. Grótta fékk í vikunni liðsstyrk þegar Dagmar Guðrún Pálsdóttir gekk til liðs við Gróttu á láni frá Fram. Júlíus segir komu hennar mikilvæga fyrir liðið, ekki síst til að auka möguleikana hægra megin á vellinum. „Innkoma hennar er bara mjög góð fyrir okkur. Dagmar vill ná langt eins og allt liðið. Hún mun að sjálfsögðu líka auka breiddina hægra megin á vellinum hjá okkur og gefa okkur aðeins fleiri möguleika í flæði og spili. En eins og viðbúið er þarf hún tíma til að kynnast hópnum og komast inn í hlutina hjá okkur.“ Grótta og ÍBV mætast eins og fyrr segir í dag en Grótta sem lék í Grill66-deildinni á síðustu leiktíð sló út ÍBV í Powerade-bikarnum á síðustu leiktíð. Júlíus segir að sá sigur hafi enga þýðingu í leiknum í dag. „Hver leikur hefur sitt líf þannig nei, bikarleikurinn hefur ekkert með þennan leik að gera. En auðvitað höfum við trú á verkefninu eins og öllum öðrum verkefnum þó svo að ÍBV sé með landsliðskonur í öllum stöðum. Við vitum það að þetta er krefjandi verkefni en á sama tíma fullar tilhlökkunar að máta okkur við besta lið landsins.“ Júlíus Þór segir ýmislegt jákvætt hafa komið fram í leik Gróttu í fyrstu umferðum tímabilsins. Hann telur liðið ekki langt frá því að ná þeim árangri sem stefnt er að en leggur áherslu á að meiri stöðugleika þurfi í leik liðsins. „Byrjunin á mótinu hefur verið ágæt. Okkur líður eins og við séum ekkert langt frá þessu. En við þurfum aðeins meiri stöðugleika í okkar lið og vinnum við hörðum höndum að því að bæta það.“ „Við höfum gert margt mjög gott í byrjun móts, sóknarleikurinn hefur verið flottur á löngum köflum sem og keyrslan upp völlinn. Einnig hafa fleiri leikmenn stigið upp hjá okkur og sýnt okkur að þær séu tilbúnar að taka ábyrgð sem er alltaf jákvætt.“ Þjálfarinn er því bjartsýnn á framhaldið og segir mikilvægt að halda áfram þeirri vinnu sem þegar hefur verið lögð í liðið. „En við höldum bara áfram að vinna í okkar málum, þetta er á réttri leið. Þetta er langhlaup, ekki spretthlaup,“ sagði Júlíus Þór að lokum í samtali við Handkastið en Grótta er með fjögur stig að loknum fyrstu sex leikjum tímabilsins.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.