Stymmi Klippari mun í allan vetur spá í spilin og tippa á hvernig komandi umferð mun fara í Olís deildum karla og kvenna. Hér að neðan má sjá hvernig hann telur að 7.umferð fari í Olís deild karla. Fram – Haukar (Þriðjudagur 19:30) / Sigurvegari: Haukar Þór - Stjarnan (Miðvikudagur 19:00) / Sigurvegari: Stjarnan Selfoss - Víkingur (Miðvikudagur 19:30) / Sigurvegari: Víkingur KA - Afturelding (Fimmtudagur 19:00) / Sigurvegari: Afturelding Annar virkilega áhugaverður leikur. Afturelding verið á miklu flugi meðan KA hafa tapað tveim leikjum í röð gegn Víking og Stjörnunni sem þeir telja sig eiga að vinna fyrirfram. Þetta er algjör 1x2 leikur eins og við ræddum í Handkastinu á mánudaginn en ég hef trú á Hrannari Guðmundsson og strákunum hans, þeir fara norður og vinna. Afturelding (jafntefli ógildir veðmál) á stuðlinum 1.76 á Coolbet er eitthvað sem heillar mig. Valur – ÍBV (Föstudagur 18:30) / Sigurvegari: Valur Valsmenn fá loksins ágætis hvíld milli leikja eftir mikið leikjaálag. ÍBV er búið að vinna tvo leiki í röð eftir þjálfaraskiptin og verða að treysta á stórleik frá Degi Arnarssyni ef þeir ætla að eiga séns í Valsara. Ég tel hins vegar að Valur muni keyra hraðann vel upp í þessum leik og ÍBV eigi lítinn mögulega á að hlaupa með Hlíðarendapiltum sem munu vinna þetta nokkuð örugglega með 5+ mörkum. HK – FH (Föstudagur 19:30) / Sigurvegari: FH 1.umferð (6 réttir)
Fram sýndu ágæta takta gegn FH framan af leik en það dugði ekki til. Einar Jónsson mun þó eflaust reyna að byggja ofan á það. Það þarf ekki að eyða mörgum orðum um Haukana, efstir í deildinni með fullt hús stiga. Ekki frábær leikur fyrir Fram að fá meðan þeir eru að leita af sínum næsta sigri. Haukar munu fara upp í Úlfarsárdal og vinna þennan leik nokkuð þægilega. Hauka að vinna leikinn með 5 mörkum eða meira á stuðlinum 1.7 á Coolbet er eitthvað sem ég myndi skoða.
Virkilega áhugavert einvígi. Þór byrjuðu tímabilið af krafti en Stjarnan eru komnir yfir þá í deildinni eftir 6 umferðir. Þór var að koma úr tvíhöfða í Vestmannaeyjum meðan Stjarnan vann nágranna þeirra í KA í Garðabænum. Þetta verður alvöru naglbítur en ég held að Stjarnan fari norður og vinni Þór.
Botnslagur af bestu gerð. Ég sagði í síðasta Handkast þætti að ég teldi Selfoss vera fallið ef þeir tapa þessum leik. Ég hef meiri trú á að Víkingur sæki fleiri óvænt stig í vetur en Selfoss. Víkingar hafa eflaust ekki gleymt einvígi liðanna fyrir 2 árum um sæti í Olís deildinni og vilja hefna fyrir það ásamt því að skilja Selfyssinga eftir eina á botninum. Víkingur fer austur fyrir fjall og vinnur þennan leik.
HK búið að sækja 4 góð stig í deildinni þrátt fyrir mikil meiðslavandræði. FH hafa spilað virkilega vel í deildinni meðan Evrópan hefur verið aðeins meira basl. Þetta mun ekki verða hindrun fyrir FH-inga sem munu fara í Kórinn á föstudaginn og vinna þægilegan sigur.
2.umferð (4 réttir)
3.umferð (4 réttir)
4.umferð (1 réttur)
5.umferð (5 réttir)
6.umferð (4 réttir)

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.