Stymmi Klippari mun í allan vetur spá í spilin og tippa á hvernig komandi umferð mun fara í Olís deildum karla og kvenna. Hér að neðan má sjá hvernig hann telur að 6.umferð fari í Olís deild karla. Afturelding – HK (Fimmtudagur 18:15) / Sigurvegari: Afturelding Haukar - Selfoss (Fimmtudagur 19:00) / Sigurvegari: Haukar ÍBV - Þór (Föstudagur 18:00) / Sigurvegari: Þór Stjarnan - KA (Föstudagur 18:30) / Sigurvegari: KA Bæði lið duttu úr bikarkeppninni í síðustu viku. Bjarni Ófeigur verði sennilega ekki með KA mönnum í kvöld vegna meiðsla en ég held að sterkur varnarleikur, Ágúst Elí fyrir aftan og Dagur Gauta í hraðaupphlaupum munu leggja grunninn að sigri KA í Garðabænum. Stjarnan hefur verið að sína ágætar frammistöður á þessu tímabili en það mun ekki duga gegn KA á morgun. Víkingur - Valur (Föstudagur 19:00) / Sigurvegari: Valur Valsmenn eru í mikilli törn þessa dagana svo Víkingar eru eflaust ánægðir að fá þá á þessu stigi tímabilsins. Víkingar unnu frábæran sigur á KA í bikarkeppninni í síðustu viku. Valsmenn halda áfram að gera það gott í Evrópu og mun sigur þeirra á Tatabanja í vikunni gefa þeim aukna orku fyrir þennan leik og þeir vinna að lokum eftir mikla baráttu. Fram – FH (Laugardagur 18:30) / Sigurvegari: FH 1.umferð (6 réttir)
Ég hreinlega man ekki hvenær HK náði í stig gegn Aftureldingu síðast. Árin eru allavegna orðin talsvert mörg og bara í síðustu viku slógu Afturelding þá út úr Powerade bikarnum. Það mun ekkert breytast í kvöld þar sem Afturelding fer með þægilegan sigur af hólmi.
Haukar eru með fullt hús á toppi deildarinnar og hafa verið að vinna þessa skyldusigra nokkuð örugglega. Selfoss er ennþá í leit af fyrsta sigrinum en hann kemur því miður ekki í kvöld þar sem Haukar munur vinna þenann leik talsvert örugglega.
Þórsarar að fara í svokallaðan tvíhöfða í Vestmannaeyjum þar sem þeir mæta ÍBV á föstudegi og ÍBV 2 í Powerade bikarnum á laugardaginn. Ég ætla spá því að þetta verði alslemma hjá Þórsurum í Vestmannaeyjum þessa helgina og þeir fari með tvo sigra í farteskinu norður aftur.
Fram hafa verið í mikilli brekku undanfarið og þarf Einar Jónsson að finna lausnir á vandamálum þeirra. FH fóru illa með þá í bikarkeppninni fyrir viku síðan en voru að koma úr erfiðu ferðalagi til Madeira þar sem þeir töpuðu illa í Evrópukeppninni. Ef Fram ætla að finna „mojo-ið“ sitt aftur þá er þetta leikurinn til þess að snúa taflinu við. FH hafa verið að spila virkilega vel heima fyrir og munu halda því áfram á föstudaginn og vinna Fram en munu þurfa hafa meira fyrir því en í bikarkeppninni.
2. umferð (4 réttir)
3.umferð (4 réttir)
4.umferð (1 réttur)
5.umferð (5 réttir)

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.