Grótta 2 og Afturelding mættust í dag í Grill 66 deild kvenna en leikið var á Seltjarnarnesi. Aftureldingar sýndu strax í byrjun leiks að það var mikill getumunur á milli liðanna. Þær voru miklu betri allan fyrri hálfleikinn. Mest náðu þær 7 marka forskoti. Hálfleikstölur voru síðan 15-21 fyrir gestina úr Mosó. Í seinni hálfleik náðu Gróttu stelpur ekkert að saxa á forskot Aftureldingar. Afturelding bætti bara örlítið enn meira í og komst mest 11 mörkum yfir. Lokatölur urðu 28-39 fyrir Aftureldingu og halda þær áfram uppteknum hætti. Eru þær taplausar á tímabili og stefna hraðbyri upp í efstu deild. Hjá Aftureldingu var Katrín Helga Davíðsdóttir markahæst með 9 mörk. Markvarslan skilaði þeim 8 boltum. Hjá Gróttu 2 var Elísabet Ása Einarsdóttir með 11 mörk. Soffía Helen Sölvadóttir varði 3 skot í markinu. Sage By Saga Sif styður kvennaumfjöllun Handkastsins - Kóðinn: handkastid veitir 15% afslátt í vefverslun Sage By Saga Sif.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.