Viggó Kristjánsson verður ekki með íslenska landsliðinu þegar liðið tekur á móti Úkraínu í Laugardalshöll í kvöld í fyrsta leik sínum í undankeppni Evrópumótsins 2028. Viggó tekur út leikbann sem hann hlaut í kjölfar rauðs spjalds í bronsleik Íslands og Króatíu á Evrópumótinu fyrr á þessu ári. Hann var engu að síður valinn í landsliðshóp Snorra Steins Guðjónssonar fyrir leikina tvo í þessari landsleikjaviku. Þrátt fyrir fjarveru Viggós hefur íslenska liðið þó úr fjölmörgum öflugum leikmönnum að velja. Ómar Ingi Magnússon, Kristján Örn Kristjánsson og Teitur Örn Einarsson eru meðal þeirra örvhentu leikmanna sem eru í hópnum og geta leikið í hægri skyttustöðunni. Viggó, sem leikur með þýska úrvalsdeildarfélaginu Erlangen, hefur leikið 84 landsleiki og skorað 260 mörk fyrir Ísland. Hann verður aftur gjaldgengur þegar Ísland mætir Eistlandi á útivelli á sunnudaginn. Íslenska liðið hefur einnig orðið fyrir skakkaföllum vegna meiðsla en Einar Þorsteinn Ólafsson og Ýmir Örn Gíslason eru frá. Teitur Örn Einarsson hefur verið kallaður inn í hópinn í stað Einars Þorsteins. Uppselt er á leik Íslands og Úkraínu sem hefst klukkan 19:30 í Laugardalshöll í kvöld. Leikurinn verður sýndur í beinni útsendingu á RÚV.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.