Færeyjar og Króatía settu ný markamet í fyrstu umferð undankeppni EM 2028 í handbolta karla í gærkvöldi líkt og íslenska landsliðið gerði gegn Úkraínu í Laugardalshöllinni. Allar þrjár þjóðirnar skoruðu fleiri mörk en þær höfðu áður gert í einum leik í undankeppni EM. 48 mörk og nýtt íslenskt met í undankeppni EM Færeyingar unnu 37-30 sigur á Kósovó og bættu fyrra met sitt um tvö mörk. Þeir leiddu 20-13 í hálfleik og fór Óli Mittún fyrir sóknarleiknum með átta mörk úr jafnmörgum skotum. Gamla metið var frá maí 2025 þegar Færeyjar unnu Úkraínu 35-27. Króatar bættu sitt met um sex mörk með 46-28 sigri á Litháen. Fyrra metið hafði staðið í rúm ellefu ár, frá því að Króatía vann Tyrkland 40-26 í júní 2015. Ísland skoraði flest mörk allra liða á fyrsta leikdegi undankeppninnar þegar liðið vann 48-26 sigur á Úkraínu í Laugardalshöll. Þar með féll metið frá júní 2011 þegar Ísland vann Austurríki 44-29. Bjarki Már Elísson og Ómar Ingi Magnússon voru markahæstir hjá Íslandi með sex mörk hvor.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.