Guðjón Guðmundsson, Gaupi, var ómyrkur í máli um Stjörnuna í nýjasta þætti Handkastsins. Hann gagnrýndi bæði sóknarleik liðsins og skort á skýrri hugsun í leik þess. Stjarnan situr í ellefta sæti Olís-deildar karla með fimm stig eftir níu leiki. Gaupi sagðist ekki hafa verið hrifinn af því sem hann sá til liðsins gegn Val en hrósaði þó Ísaki Loga Einarssyni sérstaklega. „Ég sá Stjörnuna spila gegn Val og ég var ekki hrifinn. Þeir eru með Ísak Loga sem hefur verið algjörlega magnaður og er frábær leikmaður. En þeir munu ekki halda honum í Stjörnunni á næstu leiktíð miðað við hvernig hann er að spila, það er algjörlega klárt.“ Að mati Gaupa vantar meira en baráttu í leik Stjörnunnar. „Mér finnst einkenna Stjörnuna að þeir mæta til leiks og það er barátta og þeir ætla að djöflast áfram varnarlega og fautagangur en það er lítil hugsun á bak við þetta. Hugsunin er engin," sagði Gaupi en var sérstaklega gagnrýninn á sóknarleik liðsins og sagðist sakna þess að sjá skýra stefnu í spilamennskunni. „Sóknarleikur liðsins er varla boðlegur. Mér finnst þetta eins og að horfa á yngri flokka. Boltinn gengur frá hægri til vinstri, það er engin sjáanleg lína hvað þeir eru að spila eftir.“ Þótt Gaupi teldi Stjörnuna þurfa sterkari leikmenn í einhverjar stöður væri hægt að gera meiri kröfur til liðsins. „Þeir eru að reyna að setja upp og auðvitað vantar þá betri leikmenn í einhverjum stöðum en Stjarnan á klárlega að gera betur en þeir hafa gert, það liggur alveg ljóst fyrir. En ég hef ekki verið hrifinn af þeim og ef þeir hefðu ekki Ísak Loga þá væru þeir í verulega slæmum málum.“ Gaupi varaði jafnframt við því að baráttan ein og sér myndi ekki skila árangri til lengdar. „Þú getur ekki farið í Olís-deildina og ætlað að berjast og djöflast áfram og spila á einhverjum fautagangi. Það gengur í einum eða tveimur leikjum en þegar leikirnir verða fleiri þá hrynur það eins og spilaborg.“

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.