Fram 2 og Valur 2 mættust í dag í Grill 66 deild kvenna í Lambhagahöllinni. Vals stúlkur tóku strax yfirhöndina í leiknum og voru einfaldlega mun betri. Um miðbik fyrri hálfleiks leiddu þeir leikinn með 4 mörkum og þegar flautað var til loka fyrri hálfleiks var munurinn orðinn 8 mörk. 12-20 fyrir Val voru hálfleikstölur. Fram stelpur hresstust aðeins við í seinni hálfleik og voru að spila mun betur en í fyrri hálfleik. Þær söxuðu aðeins á forskot Vals en nær komust þær ekki en að minnka muninn í 3 mörk. Fram stelpur réðu illa við Laufey Helgu Óskarsdóttur sem fór hamförum og setti 14 mörk. Lokatölur urðu 27-31 fyrir Val. Hjá Fram var Katla Kristín Hrafnkelsdóttir markahæst með 11 mörk. Arna Sif Jónsdóttir varði 9 skot. Hjá Val var Laufey Helga Óskarsdóttir markahæst með 14 mörk. Iðunn Vala Kristbjörnsdóttir varði 8 skot. Sage By Saga Sif styður kvennaumfjöllun Handkastsins - Kóðinn: handkastid veitir 15% afslátt í vefverslun Sage By Saga Sif.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.