Dómarnir völdu sinn uppáhalds þjálfara í þýsku Bundesligunni
FRANK MOLTER / AFP

Aleš Pajovič, þjálfari þýska stórliðsins Flensburg-Handewitt, hefur hlotið sérstaka viðurkenningu frá þýskum handknattleiksdómurum fyrir framkomu sína og samskipti við dómara. Slóveninn hlaut Golden Whistle-verðlaunin árið 2026, sem veitt eru fyrir háttvísi og virðingu gagnvart dómurum.

Það eru dómarar á efstu stigum þýsks handbolta sem tilnefna þá einstaklinga sem koma til greina. Pajovič þótti skara fram úr fyrir yfirvegaða framkomu og jákvæð samskipti, jafnvel í spennuþrungnum leikjum þar sem mikið er undir.

Jutta Ehrmann, yfirmaður dómaramála hjá þýska handknattleikssambandinu, fagnaði valinu og hrósaði þeim góðu samskiptum sem Pajovič hefur átt við dómara. Slóveninn hefur sjálfur lýst ánægju sinni með viðurkenninguna og lagt áherslu á að þótt ástríða og sigurvilji séu mikilvægir þættir í handbolta megi gagnkvæm virðing aldrei gleymast.

Pajovič tók við þjálfun Flensburg á síðustu leiktíð og hefur komið liðinu í fremstu röð þýsku Bundesligunnar. Flensburg er í þriðja sæti deildarinnar með 19 stig eftir ellefu leiki og mætir Magdeburg í stórleik á sunnudaginn.

Á meðal fyrri verðlaunahafa eru Christian Prokop, Jasmin Čamdžić, Sebastian Hinze og André Haber. Pajovič verður afhent viðurkenningin formlega á einum af næstu heimaleikjum Flensburg.

Það er því óhætt að segja að Pajovič hafi unnið sér inn virðingu dómaranna í einni sterkustu handboltadeild heims, þar sem samskipti þjálfara og dómara geta oft orðið ansi lífleg.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top