Íslendingaliðin fögnuðu sigrum í þýsku 2.deildinni
Instagram

Elmar Erlingsson var markahæstur Nordhorn-Lingen með níu mörk þegar liðið vann tíu marka útisigur á Grosswallstadt, 33–23, í þýsku 2. deildinni í dag.

Nordhorn-Lingen lagði grunninn að sigrinum með frábærum fyrri hálfleik. Gestirnir komust í 8–2 og leiddu með ellefu mörkum í hálfleik, 20–9. Eftir það var aldrei spurning hvort liðið færi með sigur af hólmi.

Blær Hinriksson og félagar í Leipzig fögnuðu einnig útisigri þegar þeir lögðu Ferndorf að velli, 30–25. Blær skoraði eitt mark samkvæmt fyrirliggjandi tölfræði leiksins.

Þá vann Lübeck-Schwartau 32–25 sigur á Coburg 2000 eftir að hafa leitt 14–12 í hálfleik. Adam Thorstensen var ekki með vegna veikinda. Lübeck-Schwartau er í 2. sæti deildarinnar með 18 stig eftir ellefu leiki.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top