35 leikmenn berjast um sæti í HM-hópi Alfreðs
SOEREN STACHE /AFP

Alfreð Gíslason, landsliðsþjálfari Þýskalands, hefur tilkynnt 35 manna bráðabirgðahóp sinn fyrir heimsmeistaramótið sem fram fer í Þýskalandi í janúar. Tvö nöfn vekja sérstaka athygli en bæði Hendrik Pekeler og Fabian Wiede eru í hópnum þrátt fyrir að hafa verið lengi frá þýska landsliðinu.

Hendrik Pekeler, sem er 35 ára gamall, hafði áður lagt landsliðsskóna á hilluna en Alfreð Gíslason hefur ákveðið að hafa hann til taks ef upp koma óvæntar aðstæður fyrir eða á meðan heimsmeistaramótinu stendur.

Samkvæmt handball-world kemur Pekeler aðeins til greina í algjörum neyðartilfellum. Ein ástæða þess að hann er í hópnum er möguleikinn á að nýta samspil hans við Andreas Wolff og Julian Köster, sem allir leika með THW Kiel.

Hin óvænta ákvörðunin er að velja Fabian Wiede, leikmann Füchse Berlin.

Wiede, sem er 32 ára gamall, hefur glímt við alvarleg meiðsli undanfarin ár og lék síðast með þýska landsliðinu á Evrópumótinu árið 2022.

Samkvæmt þýska miðlinum höfðu einnig komið upp vandamál í samskiptum hans og Alfreðs á sínum tíma.

Reynsla Wiede og fjölhæfni virðist hins vegar hafa ráðið miklu um að hann fékk sæti í hópnum. Hann getur leikið sem hægri skytta, leikstjórnandi og hægri hornamaður.

Alfreð vill hafa sem flesta möguleika opna enda enn tveir mánuðir þar til heimsmeistaramótið hefst.

Allir leikmennirnir sem Alfreð valdi fyrir síðustu leiki Þýskalands gegn Belgíu og Slóvakíu eru í 35 manna hópnum.

Þar á meðal er Nils Lichtlein, sem glímir nú við meiðsli.

Nokkrir leikmenn bætast við frá síðasta verkefni, meðal annars markverðirnir Joel Birlehm og Christopher Rudeck.

Í vinstra horninu koma Rune Dahmke og Lukas Mertens inn í hópinn en einnig eru ný nöfn í skyttustöðunum og á línunni.

Meðal þeirra sem fá tækifæri eru Luca Witzke, sem nýlega gekk til liðs við Hamburg, Kai Häfner, Franz Semper, Jannik Kohlbacher og Aron Seesing.

Á sama tíma er ljóst að leikmenn á borð við Matthias Musche, Elias Newel og Leif Tissier verða ekki með á heimsmeistaramótinu þar sem þeir eru ekki á 35 manna listanum.

Timo Kastening, sem hefur verið lengi frá vegna meiðsla, var heldur ekki valinn eftir samráð við þýska handknattleikssambandið.

Gert er ráð fyrir að Alfreð tilkynni HM-hóp sinn mánudaginn 14. desember.

Þýska landsliðið kemur síðan saman í München 3. janúar áður en heimsmeistaramótið hefst tíu dögum síðar.

Fyrir fyrsta leikinn gegn Túnis 13. janúar þarf að staðfesta lokahóp sem má að hámarki innihalda 18 leikmenn.

35 manna HM-hópur Þýskalands

Markverðir:

  • Andreas Wolff – THW Kiel
  • David Späth – Rhein-Neckar Löwen
  • Lasse Ludwig – Füchse Berlin
  • Joel Birlehm – TSV Hannover-Burgdorf
  • Christopher Rudeck – Bergischer HC

Vinstri hornamenn:

  • Tim Freihöfer – Füchse Berlin
  • David Móré – ThSV Eisenach
  • Rune Dahmke – THW Kiel
  • Lukas Mertens – SC Magdeburg

Vinstri skyttur:

  • Miro Schluroff – VfL Gummersbach
  • Marko Grgic – SG Flensburg-Handewitt
  • Matthes Langhoff – Füchse Berlin
  • Tom Kiesler – VfL Gummersbach
  • Marek Nissen – HC Erlangen

Leikstjórnendur:

  • Juri Knorr – Aalborg Håndbold
  • Nils Lichtlein – Füchse Berlin
  • Julian Köster – THW Kiel
  • Rasmus Ankermann – THW Kiel
  • Sören Steinhaus – Bergischer HC
  • Luca Witzke – HC Hamburg

Hægri skyttur:

  • Renars Uscins – TSV Hannover-Burgdorf
  • Niklas Theiß – HSG Wetzlar
  • Toma Gadza – HC Hamburg
  • Kai Häfner – TVB Stuttgart
  • Franz Semper – SC DHfK Leipzig
  • Fabian Wiede – Füchse Berlin

Hægri hornamenn:

  • Lukas Zerbe – THW Kiel
  • Mathis Häseler – VfL Gummersbach
  • Staffan Peter – SC DHfK Leipzig
  • Christoph Steinert – HC Erlangen

Línumenn:

  • Johannes Golla – MT Melsungen
  • Justus Fischer – TSV Hannover-Burgdorf
  • Jannik Kohlbacher – Rhein-Neckar Löwen
  • Hendrik Pekeler – THW Kiel
  • Aron Seesing – Rhein-Neckar Löwen

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top