Í dag mættust HK 2 og Fjölnir í Kórnum í Grill 66 deild karla. Í fyrri hálfleik voru HK-ingar alltaf aðeins á undan Fjölnismönnum. Þeir komust til að mynda í 8-5 og 12-8. Hálfleikstölur voru síðan 18-14 fyrir HK. Í seinni hálfleik héldu HK-ingar áfram að vera í bílstjórasætinu en þeir náðu aldrei að slíta Fjölnismenn almennilega frá sér. Var munurinn oft 2-4 mörk. Þegar 4 mínútur voru eftir af leiknum jafnaði Elvar Þór Ólafsson leikinn í 29-29. En nær komust þeir ekki þar sem HK-ingar skoruðu síðustu 4 mörkin í leiknum og unnu 33-29. Hjá HK 2 var Bjarki Freyr Sindrason markahæstur með 8 mörk. Patrekur Guðni Þorbergsson varði 16 skot. Hjá Fjölni var Heiðmar Örn Björgvinsson markahæstur með 8 mörk. Garpur og Hilmar vörðu 11 skot. 

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.