Danska stórstjarnan Mathias Gidsel jafnaði 17 ára gamalt markamet í Meistaradeild Evrópu þegar hann skoraði 17 mörk fyrir Füchse Berlin gegn Porto á fimmtudagskvöldið. Það sem gerir metið sérstaklega áhugavert fyrir íslenska handboltaáhugamenn er að Guðjón Valur Sigurðsson var einn þeirra sem áttu metið áður en það var slegið árið 2009. Gidsel fór á kostum í átta marka sigri Füchse Berlin á Porto, 40-32, í þriðju umferð Meistaradeildarinnar. Daninn skoraði 17 mörk úr 19 skotum og vakti frammistaða hans gríðarlega athygli. Með mörkunum 17 jafnaði Gidsel met Spánverjans Jesús Martínez de la Cal, sem skoraði 17 mörk fyrir Valladolid gegn gríska liðinu PAOK Thessaloniki þann 11. nóvember árið 2009. Spánverjinn skoraði mörkin 17 í 37-27 sigri Valladolid. Áður en Martínez de la Cal setti metið höfðu Guðjón Valur Sigurðsson og Mikail Usachov deilt metinu með 16 mörk í einum leik í Meistaradeildinni. Það sem gerir frammistöðu Gidsel enn athyglisverðari er að hann skoraði öll 17 mörkin sín úr opnum leik og tók ekki eitt einasta vítakast gegn Porto en Jesús Martínez de la Cal skoraði þrjú mörk úr vítaköstum þegar hann sló metið á sínum tíma. Saga Martínez de la Cal er jafnframt nokkuð sérstök. Hann lék aðeins eitt tímabil í Meistaradeild Evrópu en náði engu að síður að setja met sem stóð í tæp 17 ár. Spánverjinn hafði leikið allan sinn feril með Valladolid og var meðal annars í liðinu sem vann Evrópukeppni bikarhafa árið 2009. Aðeins ári eftir að hann setti markametið þurfti hann hins vegar að leggja skóna á hilluna, 29 ára gamall, vegna meiðsla. Gidsel og Martínez de la Cal deila því nú metinu yfir flest mörk í einum leik í Meistaradeild Evrópu en Guðjón Valur var einn af fyrri methöfum keppninnar. Gidsel er jafnframt markahæsti leikmaður Meistaradeildarinnar á yfirstandandi tímabili með 36 mörk eftir fyrstu þrjár umferðirnar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.