Valur vann fimm marka sigur á Fram, 30–25, í Olís-deild kvenna á heimavelli Fram í dag. Þetta var fyrsta tap Fram á tímabilinu og jafnframt sjöundi sigur Vals í röð gegn liðinu. Valskonur náðu undirtökunum í fyrri hálfleik og komust meðal annars í 10–5 og 14–9. Fram svaraði hins vegar með fimm mörkum í röð fyrir hálfleik og staðan því jöfn, 14–14, þegar liðin gengu til búningsherbergja. Jafnræðið hélt áfram framan af síðari hálfleik og Fram komst í 18–17. Þegar tæpur stundarfjórðungur var eftir var staðan enn jöfn, 21–21, en þá skoraði Valur þrjú mörk í röð og náði frumkvæðinu. Fram minnkaði muninn í tvö mörk, 22–24, en komst ekki nær. Valskonur voru sterkari á lokakaflanum og náðu mest sex marka forskoti, 30–24, áður en Katrín Anna Ásmundsdóttir skoraði síðasta mark leiksins. Elísa Elíasdóttir var markahæst hjá Val með átta mörk úr tíu skotum. Ásthildur Jóna Þórhallsdóttir skoraði sex mörk en Arna Karitas Eiríksdóttir, Ásdís Þóra Ágústsdóttir og Guðrún Hekla Traustadóttir fimm hver. Ísabella Schöbel Björnsdóttir varði ellefu skot í marki Vals. Hjá Fram var Sóldís Rós Ragnarsdóttir markahæst með fimm mörk. Elínborg Katla Þorbjörnsdóttir, Harpa María Friðgeirsdóttir, Hulda Dagsdóttir, Katrín Anna Ásmundsdóttir og Lena Margrét Valdimarsdóttir skoruðu þrjú mörk hver. Arna Sif Jónsdóttir varði tíu skot og Ethel Gyða Bjarnasen fimm. Sage By Saga Sif styður kvennaumfjöllun Handkastsins - Kóðinn: handkastid veitir 15% afslátt í vefverslun Sage By Saga Sif.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.