Haukar áfram með fullt hús – Fjórða tap Selfoss í röð
Egill Bjarni Friðjónsson

Haukar eru áfram með fullt hús stiga í Olís-deild kvenna eftir öruggan sigur á Selfossi, 35–26, á heimavelli í dag. Þetta var fjórði tapleikur Selfoss í röð en liðin mættust í 5.umferð Olís-deildarinnar á Ásvöllum.

Selfoss skoraði fyrsta mark leiksins en Haukar tóku fljótt völdin og komust í 7–2. Heimakonur bættu jafnt og þétt við forskotið í fyrri hálfleik og höfðu átta marka forystu í leikhlé, 19–11.

Selfoss minnkaði muninn í fimm mörk í síðari hálfleik, 22–17, en Haukar svöruðu með þremur mörkum í röð og náðu aftur góðum tökum á leiknum. Forskotið varð mest ellefu mörk áður en gestirnir skoruðu síðustu tvö mörkin.

Jóhanna Margrét Sigurðardóttir var markahæst hjá Haukum með sex mörk. Embla Steindórsdóttir og Sonja Lind Sigsteinsdóttir skoruðu fimm mörk hvor en Aníta Eik Jónsdóttir og Rakel Oddný Guðmundsdóttir fjögur hvor. Sara Sif Helgadóttir varði þrettán skot og Hrafnhildur Anna Þorleifsdóttir tvö.

Hjá Selfossi voru Hulda Dís Þrastardóttir og Hulda Hrönn Bragadóttir markahæstar með sex mörk hvor. Perla Ruth Albertsdóttir skoraði fimm og Arna Kristín Einarsdóttir fjögur. Selma Þóra Jóhannsdóttir varði tíu skot.

Sage By Saga Sif styður kvennaumfjöllun Handkastsins - Kóðinn: handkastid veitir 15% afslátt í vefverslun Sage By Saga Sif.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top