Powerade-bikarinn heldur nafni sínu til ársins 2031
HSÍ

Handknattleikssamband Íslands (HSÍ) og Coca-Cola á Íslandi hafa framlengt samstarfssamning sinn til ársloka 2031. Þetta kom fram í tilkynningu frá HSÍ í vikunni.

Með nýjum samningi er ljóst að bikarkeppni HSÍ í karla- og kvennaflokki mun áfram bera nafnið Powerade-bikarinn næstu árin.

Jón Halldórsson, formaður HSÍ, fagnar samningnum og segir hann mikilvægan fyrir áframhaldandi uppbyggingu íslensks handbolta.

„Það er okkur mikið ánægjuefni að framlengja samstarfið við Coca-Cola á Íslandi til ársloka 2031. Fyrirtækið hefur staðið þétt við bakið á íslenskum handbolta um árabil og Powerade bikarinn er orðinn fastur liður í handboltaárinu. Samningur til svona langs tíma gefur okkur stöðugleika og gerir okkur kleift að halda áfram að efla umgjörð íþróttarinnar,“ segir Jón í tilkynningunni.

Atli Sigurður Kristjánsson, framkvæmdastjóri markaðssviðs Coca-Cola á Íslandi, tekur í sama streng og segir fyrirtækið stolt af samstarfinu við íslenskan handbolta.

„Við erum afar ánægð með að framlengja samstarfið við HSÍ til ársins 2031. Íslenskur handbolti á sterkan sess í íslensku samfélagi og við erum stolt af því að Coca-Cola og Powerade geti áfram verið hluti af þeirri vegferð.“

Atli segir jafnframt að langtímasamningurinn gefi tækifæri til að styðja enn frekar við handboltann á öllum stigum.

„Langtímasamstarf sem þetta gefur okkur tækifæri til að byggja enn frekar ofan á það góða starf sem hefur verið unnið og styðja við handboltann, allt frá yngri flokkum upp í fremstu lið landsins,“ segir Atli.

Samstarf HSÍ og Coca-Cola hefur staðið yfir um árabil og með nýjum samningi er tryggt að Powerade-nafnið verði áfram á bikarkeppni karla og kvenna til ársloka 2031.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top