Í kvöld mættust Haukar 2 og Fram 2 á Ásvöllum í Grill 66 deild karla. Fyrri hálfleikur var mjög sveiflukenndur. Framarar voru betri í byrjun leiks og voru komnir 3 mörkum yfir þegar korter var búið af leiknum. Fljótlega náðu Haukamenn yfirhöndinni og voru betri seinna korterið í fyrri hálfleik. Hálfleikstölur voru 16-14. Í seinni hálfleik byrjuðu Haukar sterkar og náðu 4 marka forskoti. En þeir náðu aldrei að slíta sig almennilega frá Frömurum. Framarar náðu svo aldrei að jafna leikinn. Lokatölur leiksins urðu 28-27. Hjá Haukum var Daníel Máni Sigurgeirsson markahæstur með 13 mörk. Birnir og Ari Dignus vörðu samtals 14 skot. Hjá Fram var Steinar Einarsson Clausen markahæstur með 6 mörk. Jóhann Ágústsson varði 8 skot. 

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.