Í dag mættust Selfoss 2 og Valur 2 í Grill 66 deild karla en leikið var á Selfossi. Fyrstu 10-12 mínútur leiksins voru mjög jafnar en þá tók Selfoss leikinn aðeins yfir. Komust þeir fljótlega 4 mörkum yfir en hálfleikstölur voru síðan 16-14 fyrir heimamenn. Fyrstu 10 mínúturnar í seinni hálfleik var leikurinn í góðu jafnvægi en eftir það fóru Selfyssingar að slíta sig frá Völsurunum. Komust þeir mest 10 mörkum yfir og enduðu á að sigra leikinn með 9 mörkum. 38-29 urðu lokatölur fyrir heimamenn í Selfossi. Hjá Selfoss 2 var Ragnar Hilmarsson markahæstur með 10 mörk. Garðar og Egill vörðu samtals 14 skot. Hjá Val 2 var Sigurður Atli Ragnarsson markahæstur með 8 mörk. Anton Máni og Arnór Flóki vörðu samtals 8 skot. 

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.