Inga Fanney Hauksdóttir, leikmaður HK og yngir landsliða Íslands, er þrátt fyrir ungan aldur orðin ein af lykilmönnum nýliða HK í Olís deild kvenna. Inga Fanney sýnir á sér bakhliðina í dag. Fullt nafn: Inga Fanney Hauksdóttir Gælunafn: Er ekki með neitt Aldur: 19 ára Hjúskaparstaða: Föstu Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki: 24. sept 2023 Uppáhalds drykkur: Vatn eða koffínlaus Collab Uppáhalds matsölustaður: Saffran Uppáhalds sjónvarpsþáttur: The Mentalist og Friends Uppáhalds tónlistarmaður: Króli og Bruno Mars Uppáhalds hlaðvarp: Hlusta mikið á Eftirmál Uppáhalds samfélagsmiðill: TikTok Frægasti fylgjandinn þinn á Instagram: Blær Hinriks;) Fyrsta verk ef þú yrðir formaður HSÍ: Minnka kostnað hjá yngri landsliðum. Hvað ertu að meðaltali mikið í símanum á dag: 3,5 tíma Fyndnasti Íslendingurinn: Pétur Jóhann er helvíti fyndinn Hvernig hljóma síðustu skilaboðin þín til þjálfarans þíns: ,,Frábært, takk fyrir’’ Hvaða liði myndir þú aldrei spila með: Val Besti leikmaður sem þú hefur mætt: Sandra Erlingsdóttir Besti þjálfarinn sem hefur þjálfað þig: Stefán Andri er í uppáhaldi Mest óþolandi leikmaður sem þú hefur mætt: Það verður að vera Ester Amíra Ægisdóttir Hver var fyrirmyndin þín í æsku: Hef alltaf litið mikið upp til bróður míns Helsta afrek á ferlinum: Verða grilldeildarmeistarar á síðasta tímabili Mestu vonbrigðin: Það var frekar svekkjandi að vinna ekki í úrslitaleik í bikar í fyrra í 3. flokki Ef þú fengir að velja einn leikmann úr öðru íslensku liði í þitt lið: Það væri geggjað að fá Anítu Eik aftur í HK Efnilegasti handboltamaður/kona landsins: Gunnar Róberts Besti handboltamaðurinn frá upphafi: Aron Pálmarsson Ein regla í handbolta sem þú myndir breyta: Væri gaman að hafa skotklukku Þín skoðun á 7 á 6: Mér finnst það drepa allan hraða, leiðinlegt að spila og horfa á. Hver er þín fyrsta minning af handbolta: Fyrsta handboltaæfingin mín Í hvernig handboltaskóm spilar þú: Puma accelerate nitro sqd Hvaða þrjá handbolta leikmenn tækir þú með þér á eyðieyju, og af hverju: Ég myndi taka Leöndru fyrir alvöru pepp, Sóley Ívars til þess að veiða mat fyrir okkur og Völu til þess að koma okkur af eyjunni. Hvaða lag kemur þér í gírinn: ÞAÐ ER með Herra Rútína á leikdegi: Reyni yfirleitt að fá mér brauð með kotasælu eða boost í morgunmat, síðan horfi ég á klippur af andstæðingnum Hvern í liðinu þínu myndirðu velja til að taka þátt í Love Island: Ég myndi velja Tótu Braga Sturluð staðreynd um sjálfan þig: Ég hef keppt tvisvar á landsmóti í hestum Hvaða samherji hefur komið þér mest á óvart eftir að þú kynntist honum og af hverju: Hvað Millý er mikill meistari Ef þú fengir eina spurningu til að spyrja hvern sem er. Hver yrði spurningin og hvern myndiru spyrja: Ég myndi spyrja Bruno Mars hvort hann gæti haldið tónleika í Kórnum

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.