Margrét Einarsdóttir, markmaður Stjörnunnar, átti góðan leik gegn ÍR þar sem Stjarnan þurfti því miður að sætta sig við tap. Margrét sýnir á sér bakhliðina í dag. Fullt nafn: Margrét Einarsdóttir Eldri bakhliðar: Bakhliðin: Einar Birgir Stefánsson Bakhliðin: Ólöf Maren Bjarnadóttir Bakhliðin: Hákon Garri Gestsson Bakhliðin: Ethel Gyða Bjarnasen Bakhliðin: Andri Fannar Elísson Bakhliðin: Harpa María Friðgeirsdóttir Bakhliðin: Inga Dís Jóhannsdóttir Bakhliðin: Tryggvi Sigurberg Traustason Bakhliðin: Ásdís Þóra Ágústsdóttir Bakhliðin: Gunnar Kári Bragason Bakhliðin: Ómar Darri Sigurgeirsson Bakhliðin: Patrekur Smári Arnarsson Bakhliðin: Guðmunda Auður Guðjónsdóttir Bakhliðin: Vigdís Arna Hjartardóttir Bakhliðin: Stefán Magni Hjartarson Bakhliðin: Sigurjón Bragi Atlason Bakhliðin: Ingvar Dagur Gunnarsson Bakhliðin: Ævar Smári Gunnarsson Bakhliðin: Rakel Oddný Guðmundsdóttir Bakhliðin: Embla Steindórsdóttir Bakhliðin: Sonja Lind Sigsteinsdóttir Bakhliðin: Dagur Fannar Möller Bakhliðin: Harpa Valey Gylfadóttir Bakhliðin: Alexandra Ósk Viktorsdóttir Bakhliðin: Elís Þór Aðalsteinsson Bakhliðin: Kristófer Tómas Gíslason Bakhliðin: Haukur Ingi Hauksson Bakhliðin: Tinna Valgerður Gísladóttir Bakhliðin: Lydía Gunnþórsdóttir Bakhliðin: Magnús Dagur Jónatansson Bakhliðin: Ásthildur Jóna Þórhallsdóttir Bakhliðin: Arna Karitas Eiríksdóttir Bakhliðin: Matthildur Lilja Jónsdóttir Bakhliðin: Jökull Blöndal Björnsson Bakhliðin: Skarphéðinn Ívar Einarsson Bakhliðin: Sigurður Dan Óskarsson Bakhliðin: Breki Hrafn Árnason Bakhliðin: Bakhliðin: Lilja Ágústsdóttir Bakhliðin: Ísak Logi Einarsson Bakhliðin: Garðar Ingi Sindrason Bakhliðin: Alfa Brá Oddsdóttir Hagalín Bakhliðin: Dagur Árni Heimisson
Gælunafn: Magga.
Aldur: 25 ára.
Hjúskaparstaða: Í sambúð.
Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki: Árið 2014 með Fylki.
Uppáhalds drykkur: Kaffi.
Uppáhalds matsölustaður: Tokyo Sushi.
Uppáhalds sjónvarpsþáttur: Better Call Saul.
Uppáhalds tónlistarmaður: Höfundur besta jólalags allra tíma og pabbi minn, Einar Örn Jónsson.
Uppáhalds hlaðvarp: KG Pod.
Uppáhalds samfélagsmiðill: Facebook.
Frægasti fylgjandinn þinn á Instagram: Annað hvort Saga Garðars eða Gucci Valdimars.
Fyrsta verk ef þú yrðir formaður HSÍ: Taka upp gamla lógóið.
Hvað ertu að meðaltali mikið í símanum á dag: Svona 1-2 klst.
Fyndnasti Íslendingurinn: Saga Garðarsdóttir.
Hvernig hljóma síðustu skilaboðin þín til þjálfarans þíns: Geturu sent á mig æfingaleikinn sem þú ert með? Eða ertu búinn að klippa skot?
Hvaða liði myndir þú aldrei spila með: Gróttu en bara vegna þess að það er svo mikil umferð út á Nes.
Besti leikmaður sem þú hefur mætt: Karen Knúts.
Besti þjálfarinn sem hefur þjálfað þig: Margir góðir koma til greina en ætli það sé ekki Bubbi Morthens svona á seinni tíð.
Mest óþolandi leikmaður sem þú hefur mætt: Erfitt að segja, það er lang skemmtilegast að spila á móti óþolandi leikmönnum.
Hver var fyrirmyndin þín í æsku: Íris Björk Símonardóttir.
Helsta afrek á ferlinum: Að vera kölluð inn í landsliðshóp 5 tímum fyrir brottför til Serbíu.
Mestu vonbrigðin: Að leyfa Aldísi Ástu að skora úr aukakasti í framlengdum leik í úrslitakeppninni árið 2022.
Ef þú fengir að velja einn leikmann úr öðru íslensku liði í þitt lið: Sara Odden.
Efnilegasti handboltamaður/kona landsins: Alltaf Elín Klara Þorkelsdóttir.
Besti handboltamaðurinn frá upphafi: Emil Nielsen.
Ein regla í handbolta sem þú myndir breyta: Ekkert jafntefli.
Þín skoðun á 7 á 6: Fínt tól til að grípa í ef ekkert gengur, en nota sparlega!
Hver er þín fyrsta minning af handbolta: Mætti á vinaæfingu á fyrstu æfingu vetrarins hjá 6.flokki Fylkis. Þá var Alla Gokorian að þjálfa og um 30 stelpur mættu. Þetta var engin handboltaæfing heldur herbúðir. Ég hafði prófað allar íþróttir og ekki fundið mig í neinu svo mamma píndi mig til að gefa þessu annan séns. Á næstu æfingu mættu bara 6 stelpur, ég sett í mark og mér sagt að ef ég hætti þá værum við ekki með lið.
Í hvernig handboltaskóm spilar þú: Er að prófa Kempa Wing í fyrsta skiptið, toppeinkunn frá mér.
Hvaða þrjá handbolta leikmenn tækir þú með þér á eyðieyju, og af hverju: Natsja Hammer, fyrir henni eru engin vandamál bara lausnir og auk þess eru Færeyingar hörku veiðimenn. Sara Odden, hún myndi sjá til þess að það væri skipulag á hlutunum og hreysið okkar væri fínt. Síðan væri það Trude Håkonsen, hún hefur búið í Ástralíu svo ég treysti á hana til að díla við skordýrin og hún hlýtur að hafa erft það frá forfeðrum sínum að vera öflug í skipasmíðum.
Hvaða lag kemur þér í gírinn: This is my life með Eurobandinu.
Rútína á leikdegi: Ég reyni að halda í glundroðann á leikdegi, en það sem ég geri nánast alltaf er betla kaffibolla í keppnishöllinni, sérstaklega í útileikjum.
Hvern í liðinu þínu myndirðu velja til að taka þátt í Love Island: Ég sendi Vigdísi, hún hefði gaman að því 🙂
Sturluð staðreynd um sjálfan þig: Ég er stærðfræðingur.
Hvaða samherji hefur komið þér mest á óvart eftir að þú kynntist honum
og af hverju: Dora Pajic, skemmtilega hreyfingar og góð slútt. Ekki skemmir fyrir hvað hún er mikill húmoristi og skemmtilegur karakter.
Ef þú fengir eina spurningu til að spyrja hvern sem er. Hver yrði spurningin og hvern myndiru spyrja: Ég myndi spyrja Ómar Örn Jónsson og/eða Halldór Stefán Haraldsson hvort þeir væru til í að taka slaginn með Fylki og koma félaginu aftur á kortið.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.