Janus Daði Smárason og Viktor Gísli Hallgrímsson fögnuðu sigri með Barcelona í spænsku úrvalsdeildinni í gær þegar liðið lagði Villa de Aranda á útivelli, 33–40. Janus Daði skoraði fjögur mörk en Viktor Gísli var kominn aftur í mark Barcelona eftir veikindi. Samkvæmt Vísi varði hann 18 skot og var með 35,3% markvörslu. Barcelona var sex mörkum yfir í hálfleik, 16–22. Heimamenn náðu að minnka muninn í fjögur mörk undir lok leiksins en Börsungar héldu forystunni og lönduðu sjö marka sigri. Barcelona er áfram með fullt hús stiga með átta stig eftir fjóra leiki í 3.sæti deildarinnar. Valladolid og Bidasoa Irun eru í efstu tveimur stigunum einnig með fullt hús stiga en eftir fimm leiki. Barcelona fer til Rúmeníu og mætir Dinamo Bucuresti á fimmtudaginn í 4.umferð Meistaradeildar Evrópu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.