Danska úrvalsdeildarliðið Ikast Håndbold hefur orðið fyrir miklu áfalli eftir að tvær af lykilkonum liðsins, þær Stine Skogrand og Emma Lindqvist, meiddust í leik gegn København Håndbold í dönsku úrvalsdeildinni. Norska landsliðskonan Stine Skogrand fótbrotnaði í leiknum og verður því frá keppni um óákveðinn tíma. Ekki liggur enn fyrir hversu lengi hún verður frá handboltavellinum. Skogrand hefur verið einn af burðarásum Ikast undanfarin ár og er jafnframt reynslumikill leikmaður norska landsliðsins. Meiðslin eru því mikið áfall fyrir danska félagið sem og norska landsliðið. Ófarir Ikast í leiknum voru þó ekki þar með upptaldar því sænska landsliðskonan Emma Lindqvist meiddist einnig. Hún varð fyrir meiðslum aftan í læri og bíður frekari rannsókna til að meta alvarleika þeirra. Meiðsli Skogrand gætu jafnframt sett strik í reikninginn hjá norska landsliðinu í undirbúningi þess fyrir Evrópumót kvenna sem hefst í desember. Enn á eftir að koma í ljós hversu lengi Skogrand og Lindqvist verða frá keppni, en ljóst er að meiðslin eru mikið áhyggjuefni fyrir Ikast á þessum tímapunkti tímabilsins.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.