Mundi gengur í raðir Fjölnis
Fjölnir

Guðmundur Hlífar Jóhannesson hefur gengið til liðs við Fjölni frá Þór og skrifað undir tveggja ára samning við félagið. Þar er með ljóst að hann leikur með Fjölni í Grill66-deildinni á þessu tímabili.

,,Guðmundur, eða Mundi eins og hann er jafnan kallaður, er ungur og efnilegur hornamaður, fæddur árið 2006. Hann kemur til með að styrkja leikmannahóp Fjölnis og verður spennandi að fylgjast með honum taka næstu skref á sínum ferli í Grafarvoginum," segir í tilkynningunni frá Fjölni.

Meistaraflokksráð félagsins fagnar komu Guðmundar til félagsins.

„Við erum mjög ánægð með að fá Munda til liðs við okkur. Hann er ungur og efnilegur leikmaður sem við höfum mikla trú á. Við hlökkum til að fá hann inn í hópinn og fylgjast með honum halda áfram að þróast sem leikmaður á komandi árum.“

Guðmundur er spenntur fyrir nýju verkefni í Fjölnisbúningnum.

„Ég er mjög ánægður með að hafa skrifað undir og hlakka mikið til að takast á við komandi tímabil með Fjölni. Það eru spennandi tímar fram undan og ég er tilbúinn að leggja mitt af mörkum með liðinu í vetur.“

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top