Paulo Fidalgo, þjálfari portúgalska liðsins Marítimo, ber FH vel söguna fyrir leik liðanna í B-riðli Evrópudeildarinnar á morgun og segir Hafnarfjarðarliðið skipað mörgum góðum leikmönnum. Fidalgo segir mikilvægt að Marítimo nái að laga sig að leikstíl FH, sem að hans mati einkennist af norrænum áherslum, miklum krafti og baráttugleði. Þjálfarinn vakti athygli á sterkum skyttum FH og varaði þar sérstaklega við Ómari Darra Sigurgeirssyni og Ágústi Guðmundssyni. Hann lýsti Ómari Darra sem hávöxnum og öflugum skotmanni en Ágústi sem leikmanni með mikinn sendingahraða, góðan leikskilning og öfluga skottækni. Fidalgo telur jafnframt mikilvægt að Marítimo sýni þolinmæði í sóknarleiknum. Ef liðið undirbúi sóknir sínar ekki nægilega vel geti það lent í vandræðum gegn sterkri og þungri vörn FH og markverði liðsins, Jóni Þórarni Þorsteinssyni. Hann benti einnig á að Marítimo hefði fengið að kynnast ólíkum handboltaskólum í fyrstu leikjum liðsins í Evrópudeildinni. Fyrst hafi liðið mætt franska skólanum gegn Limoges, síðan þeim spænska gegn Bidasoa og nú taki við norræni skólinn gegn FH. FH er enn án stiga eftir tvær umferðir en Hafnarfjarðarliðið tapaði 37–39 fyrir Bidasoa á útivelli í fyrstu umferð og síðan 33–46 fyrir Limoges í Kaplakrika. Marítimo er með tvö stig eftir tvo leiki. Portúgalarnir töpuðu naumlega, 30–31, fyrir Limoges í fyrstu umferð en svöruðu með sterkum 40–32 sigri á Bidasoa á heimavelli. Limoges er efst í riðlinum með fjögur stig, Marítimo og Bidasoa koma þar á eftir með tvö stig hvort en FH rekur lestina án stiga.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.