Arnar Pétursson, landsliðsþjálfari íslenska kvennalandsliðsins tilkynnti 17 manna lokahóp sinn fyrir Evrópumótið um fyrir helgi. Rætt var um val Arnars í nýjasta uppgjörsþætti Handkastsins þar sem Guðjón Guðmundsson, Gaupi, og Styrmir Klippari fóru yfir hópinn og þá vegferð sem íslenska landsliðið hefur verið á undir stjórn Arnars. Gaupi telur að valið hafi verið nokkuð fyrirsjáanlegt og að Arnar hafi þegar mótað sér skýra sýn á hvernig hann vilji stilla liðinu upp fyrir komandi stórmót. „Ég held að þetta hafi verið borðliggjandi val. Mér finnst skynsamlegt hjá honum að tilkynna bara 17 leikmenn og bíða með 18. manninn. Hann ætlar að skoða hvort það sé ástæða að bæta við 18. leikmanninum. Hann mun gera það en ég held að hann hafi valið það lið sem hann telur sterkast.“ Gaupi segir að vissulega megi alltaf deila um einstaka leikmenn en hann telji að þjálfarateymið sé með hlutina á hreinu. „Auðvitað er hægt að gagnrýna eitt og eitt val og einn og einn leikmann en ég held að hann sé með þetta á ís, hvernig hann vill og ætlar að gera þetta. Þjálfarateymið virðist vera búið að mynda sér skoðun og það kom ekkert á óvart í þessu vali,“ sagði Gaupi. Styrmir Klippari tók undir að valið hefði ekki komið mikið á óvart en sagði að einna helst hefði verið rætt um Andreu Jacobsen í aðdraganda þess að hópurinn var tilkynntur. „Það var aðallega Andrea Jacobsen sem við vorum að velta fyrir okkur. Ég hlustaði á viðtalið við Arnar Pétursson um helgina og hann var að spila mikinn póker og sagði ekki mikið. Hann dansaði í kringum spurningarnar og nefndi engin nöfn, hverjar væru næstar inn.“ Styrmir vakti jafnframt athygli á þeim metnaði sem Arnar hefur fyrir íslenska kvennalandsliðið og þeirri framtíðarsýn sem hann hefur sett fram. „En hann loksins svaraði einhverju varðandi þessa vegferð og hann vill reyna að nálgast þessi topplið og að kvennaliðið verði eins og karlaliðið okkar sem er inni á hverju einasta stórmóti,“ sagði Styrmir. Frekari umræða skapaðist í þættinum um störf Arnars Péturssonar og þá uppbyggingu sem átt hefur sér stað hjá íslenska kvennalandsliðinu undanfarin ár. Umræðuna í heild sinni má heyra í nýjasta uppgjörsþætti Handkastsins.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.