Golla vildi ekki tjá sig um félagaskiptasirkusinn
SOEREN STACHE /AFP

Johannes Golla, fyrirliði þýska landsliðsins og leikmaður MT Melsungen hefur tjáð sig um þá miklu umræðu sem skapast hefur í kringum framtíð hans hjá félaginu og fyrirhugaða endurkomu hans til Flensburg.

Golla hefur verið mikið í sviðsljósinu undanfarnar vikur vegna félagaskiptamálsins, en hann hefur óskað eftir því að yfirgefa Melsungen og snúa aftur til Flensburg, þar sem hann lék áður.

Eftir öruggan tíu marka sigur Þjóðverja gegn Belgíu, 42–32, í undankeppni EM 2028 í gærkvöldi var Golla spurður út í stöðuna.

Fyrirliðinn sagðist reyna að útiloka alla umræðu um framtíð sína og einbeita sér að verkefnunum með þýska landsliðinu. Hann hefði ekkert frekar um málið að segja að svo stöddu.

Félagaskiptamálið hefur vakið mikla athygli í þýskum handbolta og skapað umræður um samningsskyldur leikmanna og rétt félaga til að halda í þá þrátt fyrir óskir um félagaskipti.

Alfreð Gíslason, landsliðsþjálfari Þýskalands, hefur áður lýst yfir stuðningi við Golla og sagt að hann hafi ekki orðið var við að umræðan hefði haft áhrif á frammistöðu eða viðhorf fyrirliðans í landsliðinu.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top