Franski landsliðsmarkvörðurinn Samir Bellahcene hefur samið við franska úrvalsdeildarfélagið USAM Nîmes Gard og gengur til liðs við félagið sumarið 2027. Bellahcene hefur skrifað undir þriggja ára samning við félagið og snýr því aftur til heimalandsins eftir fjögurra ára dvöl erlendis. Bellahcene, sem er 31 árs gamall, leikur nú með rúmenska stórliðinu Dinamo Búkarest en hann gekk til liðs við félagið sumarið 2025 eftir tveggja ára dvöl í þýsku úrvalsdeildinni. Bellahcene hóf handboltaferil sinn í heimaborg sinni Montpellier áður en hann lék með Massy-Essonne og síðar Dunkerque á árunum 2018 til 2023. Í september 2023 gekk hann til liðs við þýska stórliðið THW Kiel eftir að Vincent Gérard meiddist. Hann hóf tímabilið 2024/25 sem þriðji markvörður Kiel á eftir Andreas Wolff og Tomas Mrkva áður en hann skipti yfir til TVB Stuttgart í nóvember 2024. Sumarið 2025 hélt hann síðan til Rúmeníu þar sem hann hefur varið mark Dinamo Búkarest. Bellahcene varð Evrópumeistari með franska landsliðinu árið 2024 þegar Frakkar tryggðu sér Evrópumeistaratitilinn eftir sigur á Danmörku í úrslitaleiknum. Markvörðurinn segist spenntur fyrir því að snúa aftur til Frakklands og takast á við nýja áskorun. „Ég er mjög ánægður með að hafa skrifað undir hjá Nîmes og að vera á leiðinni aftur til Frakklands. Miðað við þá þróun sem hefur átt sér stað hjá félaginu er ég virkilega spenntur fyrir því að verða hluti af þessu liði. Þetta er lið sem er skemmtilegt að horfa á og fylgjast með. Ég get varla beðið eftir því að verða hluti af þessu verkefni,“ sagði Bellahcene.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.