Örvhenta skyttan Einar Benedikt Ólafsson hefur gengið til liðs við HK frá norska félaginu Åkra IL. Félagaskiptin hafa sérstaka þýðingu en Einar er afabarn og nafni Einars Þorvarðarsonar, eins af stofnendum HK og fyrrum landsliðsmarkvörð Íslands og framkvæmdastjóra HSÍ. Einar kemur til HK frá Noregi þar sem hann lék síðast með Åkra IL en áður var hann í herbúðum Rival IL. Hann hefur einnig verið viðloðandi æfingahóp íslenska landsliðsins skipaðs leikmönnum fæddum 2006 og 2007, meðal annars sumarið 2024. Nú, áratugum eftir að afi hans tók þátt í að leggja grunninn að HK, klæðist Einar Benedikt treyju félagsins og heldur þannig áfram fjölskyldutengingunni við félagið. HK tekur á móti Stjörnunni í lokaleik 5.umferðar í Olís-deild karla annað kvöld klukkan 18:00.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.