Orri Freyr Þorkelsson mun ganga til liðs við Gummersbach næsta sumar og hefur hann skrifað undir samning til 2029. Guðjón Valur Sigurðsson, þjálfari Gummersbach, sagði að í Orra væru þeir að fá leikmann með reynslu úr Meistaradeild Evrópu og leikmann sem hefur reynslu af stórmótum með landsliðinu. Orri sagði sjálfur að það hefði alltaf verið draumur hans að spila í þýsku Bundesligunni og að þegar Gummersbach hefði haft samband kviknaði áhugi strax hjá honum enda væru liðið mjög gott. „Ég hef átt mjög góðan tíma hjá Sporting, þar sem ég hef þroskast mikið bæði sem einstaklingur og íþróttamaður og við náð mörgum frábærum árangri saman. Nú fannst mér rétti tíminn á ferlinum til að taka næsta skref og takast á við nýja áskorun. Frá því ég var barn hefur mig alltaf langað að spila í Bundesligunni. Þegar Gummersbach hafði samband fékk ég strax áhuga því þetta er gott lið og mjög metnaðarfullt verkefni sem er á frábærri leið," sagði Orri Freyr. Í sömu tilkynningu segir að Vujovic, vinstri hornamaður Gummersbach muni yfirgefa liðið eftir þessa leiktíð og er Orra því ætlað að fylla hans skarð. Fyrir hjá Gummersbach eru Íslendingarnir, Elliði Snær Viðarsson, Garðar Ingi Sindrason og Teitur Örn Einarsson.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.