Tveir leikir fóru fram í Meistaradeild karla í handbolta í kvöld. Veszprém vann sterkan útisigur á Wisla Plock eftir að hafa verið þremur mörkum undir í hálfleik og Aalborg hafði betur gegn Füchse Berlin í Danmörku. Wisla Plock 26-30 Veszprém (17-14) Veszprém vann fjögurra marka útisigur á Wisla Plock í Póllandi, 30-26. Heimamenn voru með þriggja marka forskot í hálfleik, 17-14, en ungverska stórliðið sneri heldur betur við blaðinu eftir hlé. Veszprém vann síðari hálfleikinn 16-9 og tryggði sér þar með bæði stigin. Hugo Descat var markahæstur Veszprém með átta mörk og Nedim Remili skoraði sjö. Ahmed Hesham og Dragan Pechmalbec bættu við þremur mörkum hvor. Frederik Bjerre var markahæstur Wisla Plock með átta mörk og Sergei Kosorotov skoraði fimm. Aalborg 34-31 Füchse Berlin (18-16) Aalborg vann þriggja marka heimasigur á Füchse Berlin, 34-31. Danska liðið leiddi með tveimur mörkum í hálfleik, 18-16, og náði að bæta einu marki við forskotið í síðari hálfleik. Sander Sagosen var markahæstur Aalborg með níu mörk og þeir Felix Möller og Juri Knorr skoruðu fimm mörk hvor. Patrick Wiesmach Larsen og Patrick Helland Anderson bættu við fjórum mörkum hvor. Mathias Gidsel og Tobias Grøndahl voru markahæstir Füchse Berlin með átta mörk hvor og Matthes Langhoff skoraði fimm. Færeyski landsliðsmaðurinn Hákun West av Teigum skoraði tvö mörk. Wisla Plock 26-30 Veszprém Aalborg 34-31 Füchse BerlinVeszprém sneri leiknum við í Póllandi
Aalborg hafði betur gegn Füchse Berlin
Úrslit kvöldsins

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.