ÍR batt enda á sigurgöngu Aftureldingar og sló þær úr bikarnum
Emma Elísa Jónsdóttir

ÍR tryggði sér sæti í átta liða úrslitum Powerade-bikars kvenna í handknattleik með 31-25 útisigri á Aftureldingu í kvöld. Afturelding, sem situr á toppi Grill 66 deildarinnar, hafði ekki tapað leik í vetur en varð að sætta sig við sitt fyrsta tap og er þar með úr leik í bikarkeppninni. ÍR leikur í Olís-deildinni.

Leikurinn var jafn á upphafsmínútunum og var staðan 5-5 eftir rúmlega níu mínútna leik. ÍR náði þá undirtökunum og komst í 9-5 áður en Afturelding minnkaði muninn í 9-8. Gestirnir svöruðu hins vegar með fimm mörkum í röð og komust í 14-8.

ÍR hélt forskotinu út fyrri hálfleikinn og leiddi 15-10 þegar liðin gengu til búningsherbergja.

Afturelding hóf síðari hálfleikinn af krafti og minnkaði muninn í 18-13. ÍR náði hins vegar aftur að auka forskotið og var komið í 24-15 þegar rúmar 45 mínútur voru liðnar af leiknum.

Heimakonur gáfust þó ekki upp og minnkuðu muninn í 24-19. ÍR svaraði með fjórum mörkum í röð og komst í 28-19 þegar rúmar 52 mínútur voru liðnar. Afturelding náði að minnka muninn í sex mörk undir lokin en nær komust þær ekki og ÍR fagnaði að lokum 31-25 sigri.

Katrín Helga Davíðsdóttir átti stórleik fyrir Aftureldingu og skoraði 15 af 25 mörkum liðsins. Andrea Ósk Þorkelsdóttir bætti við þremur mörkum og Brynja Rögn Ragnarsdóttir skoraði tvö. Ingibjörg Gróa Guðmundsdóttir varði ellefu skot í marki Aftureldingar.

Hjá ÍR var Sara Dögg Hjaltadóttir markahæst með tíu mörk og Sólveig Lára Kjærnested skoraði sex. Anna María Aðalsteinsdóttir og Ásthildur Bertha Bjarkadóttir skoruðu þrjú mörk hvor. Elísa Helga Sigurðardóttir varði átta skot og Sif Hallgrímsdóttir þrjú.

Sage By Saga Sif styður kvennaumfjöllun Handkastsins - Kóðinn: handkastid veitir 15% afslátt í vefverslun Sage By Saga Sif.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top