Dregið í átta liða úrslit bikarsins á morgun
Egill Bjarni Friðjónsson

Dregið verður í átta liða úrslit Powerade-bikarkeppni HSÍ í karla- og kvennaflokki á morgun. Drátturinn fer fram á Oche og hefst klukkan 12:15.

Sjö lið úr Olís-deild karla eru komin áfram í átta liða úrslit bikarkeppninnar en Grótta er eina liðið úr Grill 66-deildinni sem er eftir í keppninni.

Gróttumenn verða því í hlutverki litla liðsins þegar dregið verður á morgun en hin sjö liðin leika öll í efstu deild. Þau eru Afturelding, FH, Haukar, ÍBV, Valur, Víkingur og Þór.

Í kvennaflokki eru hins vegar eingöngu lið úr Olís-deildinni eftir í keppninni. Sjö lið hafa þegar tryggt sér sæti í átta liða úrslitunum en síðasta sætið ræðst í kvöld þegar Grótta og Fram eigast við. Sú viðureign hefst klukkan 19:30 og verður sýnd í beinni útsendingu á RÚV 2.

Stjarnan tryggði sér sæti í átta liða úrslitunum í gærkvöldi eftir æsispennandi viðureign gegn ÍBV sem þurfti að tvíframlengja áður en úrslit réðust. Eyjakonur eru því úr leik en Stjarnan verður í pottinum á morgun.

Liðin í pottinum – karlar

  • Afturelding
  • FH
  • Grótta (Grill 66-deildin)
  • Haukar
  • ÍBV
  • Valur
  • Víkingur
  • Þór

Liðin í pottinum – konur

  • Haukar
  • HK
  • ÍR
  • KA/Þór
  • Selfoss
  • Stjarnan
  • Valur
  • Grótta eða Fram (mætast í kvöld kl. 19:30)

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top