Alfa Brá Oddsdóttir og liðsfélagar hennar í Thüringer HC tryggðu sér sæti í undanúrslitum þýsku bikarkeppninnar í handbolta í gærkvöldi með sannfærandi tólf marka sigri á Füchse Berlin á útivelli, 37-25. Heimakonur í Füchse Berlin byrjuðu leikinn af krafti og komust í 6-3 eftir tíu mínútna leik. Thüringer HC, sem er í toppbaráttu þýsku úrvalsdeildarinnar, náði hins vegar að snúa leiknum sér í vil og var komið í 12-9 þegar 22 mínútur voru liðnar. Staðan í hálfleik var 17-14 fyrir Thüringer HC en í síðari hálfleik tóku gestirnir öll völd á vellinum. Thüringer HC skoraði níu mörk gegn aðeins tveimur mörkum Berlínarliðsins á öflugum kafla í upphafi síðari hálfleiks og breytti stöðunni í 26-16. Eftir það var sigurinn aldrei í hættu og lokatölur urðu 37-25. Levke Kretschmann var markahæst í liði Thüringer HC með átta mörk, þar af sjö úr vítaköstum. Með sigrinum tryggðu Alfa Brá og félagar sér sæti í Final Four, úrslitahelgi þýsku bikarkeppninnar, annað árið í röð. Úrslitahelgin fer fram í Stuttgart dagana 15. og 16. maí á næsta ári. Borussia Dortmund og Buxtehuder SV hafa einnig tryggt sér sæti í undanúrslitum en síðasta sætið ræðst í kvöld þegar VfL Oldenburg og HSG Bensheim/Auerbach eigast við.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.