Lovísa Thompson var markahæst ásamt Mariu Santos þegar Benfica vann stórsigur á Feirense, 41–19, í 10. umferð portúgölsku úrvalsdeildarinnar í handbolta í gærkvöldi. Lovísa skoraði tíu mörk í leiknum. Benfica var fimm mörkum yfir í hálfleik, 18–13, en í síðari hálfleik tóku Lovísa og félagar öll völd á vellinum. Benfica vann síðari hálfleikinn 23–6 og þar af kom ellefu marka kafli þar sem Feirense tókst ekki að svara fyrir sig. Lokatölur urðu 41–19. Lovísa og Maria Santos voru markahæstar hjá Benfica með tíu mörk hvor. Með sigrinum heldur Benfica toppsæti portúgölsku úrvalsdeildarinnar með 30 stig eftir tíu leiki. Lovísa og félagar eru einnig nýbúnar að tryggja sér sæti í riðlakeppni Evrópudeildarinnar í fyrsta skipti í sögu félagsins.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.