Dominik Klein, fyrrverandi heimsmeistari með þýska landsliðinu í handbolta, hefur fulla trú á að Þýskaland geti orðið heimsmeistari á heimavelli í janúar. Hann sér ákveðin líkindi með Alfreð Gíslasyni, núverandi landsliðsþjálfara Þýskalands, og Heiner Brand sem stýrði liðinu til heimsmeistaratitils árið 2007. Dominik Klein, sem er 42 ára gamall, lét þessi orð falla á Kick-off United ráðstefnunni í Sinsheim. „Ég trúi því svo sannarlega að þeir geti þetta. Ég er í grunninn bjartsýnismaður og veit hvaða styrkleikum þetta landslið býr yfir,“ sagði Klein. Hann leggur þó áherslu á að Þjóðverjar megi ekki fara fram úr sér og byrja strax að hugsa um mögulegan úrslitaleik gegn Dönum. „Það þarf að hugsa um einn leik í einu en ekki strax um úrslitaleik milli Danmerkur og Þýskalands, bara vegna þess að allir í kringum liðið eru að tala um það.“ Klein var sjálfur í þýska landsliðinu sem varð heimsmeistari á heimavelli árið 2007 undir stjórn Heiner Brand. Hann telur að Alfreð Gíslason búi yfir sömu eiginleikum og Brand þegar kemur að því að stjórna landsliði á stórmóti. „Báðir hafa þeir algjört vald og njóta mikillar virðingar. Það er gríðarlega mikilvægt fyrir lið að hlutverkaskiptingin sé skýr og þessir tveir þjálfarar hafa alltaf lagt mikla áherslu á það,“ sagði Klein. Hann segir að leikmenn þurfi að vita nákvæmlega til hvers sé ætlast af þeim áður en stórmót hefst. „Allir vita hvert hlutverk þeirra er fyrir mótið og geta síðan farið inn á völlinn og sinnt því af ástríðu og hjarta.“ Klein segir minningarnar frá heimsmeistaratitlinum árið 2007 enn vera afar sterkar, þrátt fyrir að tuttugu ár verði liðin frá þeim sigri þegar HM hefst í janúar. „Jafnvel tuttugu árum síðar eru þessar minningar enn mjög sérstakar. Við höfum rifjað þær mikið upp að undanförnu því nú er þetta allt að koma aftur.“ Það sem stendur þó sérstaklega upp úr hjá honum er stuðningurinn sem þýska landsliðið fékk frá þjóðinni á meðan mótinu stóð. „Það sem gaf manni mesta gæsahúð var að finna að öll þjóðin stóð á bak við okkur. Það er stórkostlegt að sjá hvernig þessi stemning byggist upp þegar þýska liðið berst áfram í gegnum mótið og fleiri áhorfendur bætast við með hverjum leik.“ Klein er sendiherra heimsmeistaramótsins í München og segist afar ánægður með að Þýskaland fái aftur að halda stórmótið. Heimsmeistaramótið fer fram dagana 13.–31. janúar 2027 í sex þýskum borgum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.