Haukar mæta toppliði tékknesk-slóvakísku úrvalsdeildarinnar
Sævar Jónasson

Haukar drógust gegn slóvakíska liðinu HC DAC Dunajská Streda í 16-liða úrslitum Evrópubikars kvenna en dregið var í höfuðstöðvum Handknattleikssambands Evrópu (EHF) í Vínarborg í dag. Slóvakíska liðið er á toppi sameiginlegrar úrvalsdeildar Slóvakíu og Tékklands.

Haukar tryggðu sér sæti í 16-liða úrslitunum með því að leggja RK Levalea 2010 Nikšić frá Svartfjallalandi að velli í síðustu umferð keppninnar.

Næsti andstæðingur Hauka, HC DAC Dunajská Streda, leikur í sameiginlegri efstu deild Slóvakíu og Tékklands, Doprastav liga, þar sem liðið er á toppi deildarinnar eftir tíu leiki. Slóvakíska liðið hefur unnið níu af fyrstu tíu leikjum sínum á tímabilinu og aðeins tapað einum.

Það er því ljóst að verðugt verkefni bíður Hauka í 16-liða úrslitum keppninnar.

HC DAC Dunajská Streda hafði betur gegn hollenska liðinu JuRo Unirek VZV í síðustu umferð Evrópubikarsins. Slóvakíska liðið vann fyrri leikinn 35-26 og þann síðari 42-32 og fór því áfram með samtals 19 marka mun.

Leikið verður helgina 9.-10. janúar og 16.-17.janúar en samkvæmt drættinum eiga Haukar að hefja viðureignina á útivelli. Það getur hinsvegar vel farið svo að liðin leiki báða leikina sömu helgi eins og tíðkast í keppninni.

Alls eru 16 lið frá 13 þjóðum eftir í Evrópubikarnum. Slóvakía á flest lið eftir í keppninni, eða þrjú, en Serbía á tvö lið. Athygli vekur að tvö slóvakísk lið, HK Slovan Duslo Šaľa og MŠK Iuventa Michalovce, drógust saman. Iuventa Michalovce komst alla leið í úrslit keppninnar á síðasta tímabili.

Átta liða úrslitin fara fram í febrúar, undanúrslitin í mars og úrslitaleikirnir í maí.

Drátturinn í 16-liða úrslitum

  • LK Zug Handball (Sviss) – Maccabi Haarazim Ramat Gan (Ísrael)
  • HK Slovan Duslo Šaľa (Slóvakía) – MŠK Iuventa Michalovce (Slóvakía)
  • HC DAC Dunajská Streda (Slóvakía) – Haukar (Ísland)
  • Zwartwoud Kwiek (Holland) – Handball Erice (Ítalía)
  • WHC Cair Skopje (Norður-Makedónía) – HC Galychanka (Úkraína)
  • RK Ruma (Serbía) – O.F.N. Ionias (Grikkland)
  • ŽRK Mlinotest Ajdovščina (Slóvenía) – Madeira Andebol (Portúgal)
  • Yalıkavakspor (Tyrkland) – ŽORK Bor (Serbía)

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top