Kristinn Björgúlfsson vill sjá Odd Gretarsson í vinstra horninu hjá Þór. Staða Þórsara var til umræðu í nýjasta þætti Handkastsins en stórleikur bíður liðsins á sunnudaginn þegar það mætir KA í 11. umferð Olís-deildar karla. Þórsarar hafa tapað sex af síðustu sjö deildarleikjum sínum og benti Sérfræðingurinn á að liðið hefði fengið á sig að minnsta kosti 30 mörk í öllum leikjum sínum í deildinni í vetur. Kristinn Björgúlfsson sagði sveiflurnar í leik liðsins hafa verið áberandi gegn Haukum á Ásvöllum. „Á Ásvöllum var þetta sérstaklega áberandi að sóknarleikurinn þeirra var mjög góður á köflum og síðan var þetta hræðilegt og þá skoruðu Haukarnir úr hraðaupphlaupum. Markvarslan hjá Þór er of gloppótt. Hann ver rosalega mikið af dauðafærum en hann ver ekki þessi skot sem maður vill að markmennirnir þínir taki,“ sagði Kristinn. Hann beindi síðan sjónum sínum að hlutverki Odds Gretarssonar í liðinu. „Síðan verðum við að ræða það, hvaða glæpur er það að Oddur Gretarsson er ekki í vinstra horninu hjá Þór?“ Sérfræðingurinn benti á að Oddur hefði leikið önnur hlutverk undanfarin ár og að Þórsarar hefðu þörf fyrir hann í útspilinu. „Hann hefur ekki spilað í vinstra horninu síðustu ár og þeir eru með tvo aðra hornamenn. Það er ekki eins og breiddin hjá þeim í útlínunni sé rosaleg,“ svaraði Sérfræðingurinn. Kristinn gaf þó lítið fyrir þau rök. „Oddur er betri en þeir báðir.“ Nánar var rætt um stöðu Þórsara og nágrannaslaginn gegn KA í nýjasta þætti Handkastsins.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.