Uppsögn Sigurgeirs Jónssonar úr starfi aðstoðarþjálfara kvennaliðs Vals var til umræðu í nýjasta þætti Handkastsins. Rætt var um ákvörðunina og efuðust menn í þættinum um fjárhagslegar skýringar félagsins sem gefnar voru Sigurgeiri. ,,Mér var tilkynnt það fyrr í vikunni að það þyrfti að skera niður í þjálfarateymi meistaraflokks kvenna. Þrátt fyrir að ég hafi viljað vinna áfram að þeim verkefnum sem framundan eru þá virði ég ákvörðun félagsins," sagði Sigurgeir meðal annars á Facebook síðu sína í vikunni. „Velkominn í hópinn, Sigurgeir Jónsson, yfir aðstoðarþjálfara sem hafa verið reknir. Þetta er orðin einhver algjör tíska að þegar allt er í apaskít þá er aðstoðarþjálfarinn látinn fara,“ sagði Arnar Daði Arnarsson, sem sjálfur var látinn fara úr starfi aðstoðarþjálfara karlaliðs Stjörnunnar á Þorláksmessu í fyrra. Stymmi klippari tók undir og benti á að skammt væri liðið frá upphafi tímabilsins. „Þetta er orðin einhver lenska í deildunum hér heima að láta aðstoðarþjálfarann fara þegar gengur illa. Valur hefur tapað tveimur leikjum í upphafi tímabils og þetta er ein versta byrjun Vals í langan tíma. Valur ber fyrir sig einhverjum fjárhagslegum pælingum. Það er 1. október og tímabilið byrjaði fyrir mánuði síðan. Vissu þeir ekki hvernig fjárhagurinn stóð fyrir mánuði síðan?“ Arnar Daði dró einnig fjárhagslegu rökin í efa og vísaði til þess að færeyskur markvörður hefði nýlega yfirgefið liðið. „Þeir hafa líka misst færeyskan markvörð og eitthvað hefur hún kostað. Hvað hefði gerst ef hún hefði ekki flúið land? Hefði þá markmannsþjálfarinn líka verið látinn fara? Það er verið að moka yfir einhverja drullu með því að vera að tala um einhverja fjárhagsástæðu,“ sagði Arnar Daði. Einar Ingi Hrafnsson, gestur þáttarins, velti hins vegar upp hvort breytingar á verkaskiptingu þjálfarateymisins hefðu haft áhrif á ákvörðunina. Hann tók fram að samkvæmt því sem hann hefði heyrt væri Óskar Bjarni kominn meira inn í þjálfun liðsins. „Í kjölfarið á því vill Óskar væntanlega fá stærra hlutverk og þá er staðan því miður þannig að Sissi þarf að taka pokann, eins og hann kom sjálfur inn á á Facebook-síðu sinni. Ég á ekki von á öðru en að hann finni sér gott starf á næstu dögum,“ sagði Einar Ingi. Stymmi klippari var fljótur að benda á mögulegan áfangastað fyrir Sigurgeir. „Á ekki Einar Jónsson að taka upp símann og fá hann upp í Úlfarsárdalinn?“ Nánar var rætt um málið í nýjasta uppgjörsþætti Handkastsins. Valur heimsækir stigalaust lið KA/Þórs í 4. umferð Olís-deildar kvenna í kvöld. Leikurinn hefst klukkan 18:00 en Valskonur eru með tvö stig eftir fyrstu þrjá leiki tímabilsins.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.